„Það gjörum vér Guðmundur Jónsson, Oddur Einarsson, Pétur Pálsson og Hallvarður Bjarnason prestar …“
„… skrifað á Flugumýri í Skagafirði laugardag næsta fyrir assumpcionem sancte Maria á sama ári sem fyrr segir. “
Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 612, bl. 646-648. Reykjavík 1903-1907
Eiríkur prestur Sumarliðason stefnir Finnboga lögmanni Jónssyni á tveggja ára fresti fram fyrir erkibiskupinn í Niðarósi og ríkisráðið um hald á Grund og Grundareignum í Eyjafirði og öðrum arfi eftir Eirík Loptsson (DI VII:646).
Skrifari óþekktur.
Á blaði 1v stendur: „þa Finboge logmann var vtan stefndr af sera eireki“ og með yngri hendi neðst á blaðinu: „fra Stadarholi 1703“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr.
Öll fjögur innsiglin og þvengir eru dottin af.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Flugumýri í Skagafirði 12. ágúst 1503.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.