Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVI,16

Jarðakaupabréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Jarðakaupabréf.
Upphaf

Það gjörum vér Finnbogi prestur Einarsson, Stulli Magnússon, Jón Finnbogason, Hallur Erlendsson og Hallur Ásgrímsson, Einar Ólafsson, og Sveinn Eireksson góðum mönnum …

Niðurlag

… innsigli fyrir þetta bréf skrifað í sama stað, dags og ári er fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 596, bl. 628-630. Reykjavík 1903-1907

Athugasemd

Einar ábóti á Munkaþverá selur Guðmundi Þorleifssyni jörðina Ásgeirsvöllu í Skagafirði fyrir jörðina Tjarnir í Ljósavatnsskarði (DI VII:628).

Annað frumrit á skinni sama efnis er AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVI,15

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (130 mm x 360 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 95 mm x 320 mm.
  • Línufjöldi er 13

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v: „jardakaupsbref fyrir tíornum“.

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr.

Innsigli

Átta innsigli hafa verið á bréfinu en ekkert þeirra er varðveitt.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Bréfið var skrifað á Munkaþverá 27. mars 1503.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞEJ skráði samkvæmt reglum TEI P5 26. júní 2020.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn