„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra sendir Þorleifur Örnólfsson, Thómas Jónsson lögréttumenn, Þórólfur Ögmundsson, Jón Vigfússon, Þorsteinn Pálsson og Ketill Þorsteinsson …“
„… skrifað á Kirkjubóli í Langadal föstudaginn næsta fyrir festum Philipi et Jacobi á sama ári sem fyrr segir. “
Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 571, bl. 594-597. Reykjavík 1903-1907
Dómur útnefndur af Guðna Jónssyni konungs umboðsmanni milli Geirhólms og Langaness um umboð Björns Þorleifssonar af Ólöfu Aradóttur og um arf eftir Solveigu Björnsdóttur. Dómurinn er til í mörgum pappírsafskriftum (DI VII:594-595).
Óþekktur skrifari.
Á blaði 1v með annarri hendi en bréfritara: „domur Gudna ad vm bod Biorns rika af Olofu Aradottur skule onytt fyrst hann soktte ei hennar arf ad logum helldur med gripdeilldum og ad Einar Olafsson sie riettur erfinge Solveigar Bjornsdottur af hvorium Biorn Gudnason tok umbodit til allra peninga Solveigar“.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (293 mm x 365 mm x 19 mm).
Þrjú innsigli af sex eru varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfs kemur fram að það var skrifað á Kirkjubóli 29. apríl 1502.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.