„Það gjöri ég Benedikt Histen hirðstjóri og höfuðsmann yfir allt Ísland góðum mönnum kunnigt með þessu mínu opna bréfi …“
„… á Bessastöðum mánudaginn næstan fyrir Þorláksmessu um sumarið árum eftir Guðs burð þúshundruð fimm og tvö ár.“
Íslenzkt fornbréfasafnVII. nr. 581, bl. 609. Reykjavík 1903-1907
Benedikt hirðstjóri Histen kvittar Vigfús Erlendsson um það tilræði, er hann veitti Þórði Brynjólfssyni í kirkjudyrunum eða kirkjugarðinum á Krossi í Landeyjum (DI VII:609).
Bréfið er læst saman við bréf Kristjáns konungs annars skrifað á Akurshúsi 28. maí 1510 AM Dipl. Isl. Fasc. XXXVI,ad 1.
Skrifari er óþekktur.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 20 mm).
Innsiglið fylgir bréfinu.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfs kemur fram að það var skrifað á Bessastöðum 18. júlí 1502.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.