„In nomine domini amen. Var svofellt kaup staðfest á Reykjum í Miðfirði …“
„… þá er liðið var frá hingaðburð vors herra Jesú Christí þúshundrað fjögur hundrað og tvö ár.“
Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 567, bl. 678. Kaupmannahöfn 1896
Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 155. Bréf nr. 124. København 1963.
Kaupmálabréf Jóns Gunnlaugssonar og Þóru Ketilsdóttur.
Óþekktur skrifari. Ritað með sömu hönd og AM Dipl. Isl. LXVI, 3.
Á blaði 1v er „gamallt kaup mala Brief“ skrifað með 17. aldar hendi.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm
Fimm innsiglisþvengir hafa upphaflega verið fyrir bréfinu. Samkvæmt Islandske originaldiplomer (Stefán Karlsson 1963:156) eru leifar varðveittar af þvengjum nr. 1, 2 og 4. En þegar þetta er ritað (12. mars 2015) finnst aðeins innsiglisþvengur nr. 1 og lítill stubbur af nr. 2. Öll innsiglin eru glötuð. Gert hefur verið við bakhlið bréfsins með pappír. Á lausum miða í AM Ap. 357 stendur: „Ä þessu brefe/ sem tekur til ad rotna/ er norsk hond. Fyrer þvi hafa ädur vered 5. Jnnsigle, enn nu eru oll burtu.“
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað í Miðfirði 20. nóvember 1402.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.