„Anno domini M°. ccc°. xc°. quinto. In festo sancti suithuni episcopi secunda die mensis iulli var kirka …“
„… Þetta hefir gefist [til] kirkjunnar meðan síra Magnús hélt, og Ein[…] hann sjálfur kúgildi, [Þór]ður Leiksson kúgildi, en a[ð] viðurlagi gaf síra Magn[ús …]“
Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 505, bl. 599-601. Kaupmannahöfn 1893
Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 115-118. Bréf nr. 96 I-96 III. København 1963.
Máldagi Maríukirkju á Höskuldstöðum, þá er Pétr biskup Nikulásson vígði kirkjuna. (Íslenzkt fornbréfasafn III: 599)
Skrifari sennilega Þórður Þórðarson.
Blaðið var upphaflega fyrsta blað í grallara. Recto-síðan hefur verið auð og þar var máldaginn skrifaður. Á bakhlið bréfsins eru nótur og latneskur texti. Þar hefur ártalinu 1395 verið bætt við í neðra horni til hægri.
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 6 mm).
Engin innsigli eru varðveitt.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Í niðurlagi máldagans kemur fram að hann var skrifaður á Höskuldsstöðum, Skagaströnd, 2. júlí 1395. Tvisvar hefur síðan verið bætt við máldagann.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.