Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. V,10

Transskript af próventusamningi frá 1394. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Transskript af próventusamningi frá 1394.
Upphaf

Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Arnór Jónsson, Þórdur Eyjólfsson prestar, Björn Brynjólfsson, Sturli Þorgrímsson, Jón Þórólfsson, Gudmundur Einarsson og Leifur Einarsson …

Niðurlag

… setjum við fyrrskrifaðir menn okkar innsigli fyrir neðan þetta okkar vitnisburðarbréf, skrifað á Ríp í Hegranesi, á sama ári og degi síðar en fyrr segir.

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 408, bls. 496-498. Kaupmannahöfn 1893

Athugasemd

Próventusamningur Loðins Skeggjasonar og frú Ingibjargar abbadísar á Reynistað, þar sem Loðinn leggur á borð með sér, meðal annars, jörðina Heiði í Gönguskörðum (DI III:496). Afskrift frá 1609 af skjali frá 1394. Önnur afskrift er í AM Ap. 5670 og eftir henni er bréfið prentað í Fornbréfasafninu.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (130 mm x 280 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 100 mm x 270 mm.
  • Línufjöldi er 17.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari. Ef til vill Eyjólfur Jónsson eða Grímur Ólafsson.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á bakhlið er ritað 1394 og 1609. Einnig: „Bref vmm heide oc selfòr a Breidstade fra vijk.“

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).

Innsigli

Tvö innsigli eru fyrir bréfinu, allvel varðveitt. Þau eiga Eyjólfur Jónsson og Grímur Ólafsson og staðfesta þeir með þeim þetta transskriptabréf.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Frumbréfið var ritað 11. janúar 1394 að Stað í Reynisnesi en afskriftin 3. og 4. apríl 1609 á Ríp í Hegranesi.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. V,10
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn