Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. III,12

Falsbréf. ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Falsbréf.
Upphaf

Það gjörum við Arnór Björnsson og Jón Teitsson öllum góðum mönnum heyrinkunnigt með þessu okkru bréfi …

Niðurlag

… í Svínadal árum eftir hingaðburð vors herra Jesú Kristí þúsund cccc og eitt ár

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 282 bl. 339; nr. 562, bl. 671. Kaupmannahöfn 1893

Islandske originaldiplomer indtil 1450.s. 152-153. Bréf nr. 121. København 1963.

Athugasemd

Tveir menn transskríbera úrskurð um landamerki Hvamms og Móbergs frá 24. júlí 1379 (Íslenzkt fornbréfasafn III:671). Úrskurður Einars prests Hafliðasonar um landamerki milli Hvamms og Móbergs í Langadal í Húnavatnssýslu (Íslenzkt fornbréfasafn III:339).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
Eitt blað ca. (51 mm x 266 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca. 42 mm x 253 mm.
  • Línufjöldi er 8.

Skrifarar og skrift

Skrifari líklega Jón Þorvaldsson.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blaði 1v er skrifað með hendi frá 16 öld: "millvm hvams ok mobers vm landamerke". Skrifað með annarri hendi er "1379" og "1401".

Band

Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).

Innsigli

Annað innsiglið er gjörla varðveitt. Hitt er ekki varðveitt en bandið er óskert.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi.

Ferill

Í niðurlagi bréfsins kemur fram að það var skrifað á Auðkúlu, Svíndal 1401. Stefán Karlsson telur bréfið falsað og ritað um 1500 af Jóni Þorvaldssyni. Hann segir þó einnig koma til greina að bréfið sé ófalsað og að ártalið 1401 sé ritað af misgáningi fyrir 1501.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. III,12
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  
Efni skjals
×
  1. Falsbréf.

Lýsigögn