Svæðalýsingar, mest á íslensku en sumt á dönsku, frá nánast öllum byggðum svæðum á Íslandi. Sumar lýsingarnar styðjast við teikningar og uppdrætti. Einnig eru einstaka eldri lýsingar (frá 17. öld). Geta má sérstaklega: Alþingis katastasis (bl. 142-44), flökkusögn um Þorleif beigalda í Hítardal (bl. 187-88), Heiðar á Vestfjörðum og vikutal (bl. 254-85), Fjarðatal og tylftir í kringum Ísland, ásamt höfnum á Íslandi (bl. 314-74). Tekið saman af Árna Magnússyni og fyrir hann. Mörg auð blöð og blaðsíður.
Band frá september 1979. Þrjú bindi og bl. 318 (í stærra broti) er sér, fest í kápu.
Á fremsta saurblaði stendur með hendi Árna Magnússonar: „Chorographica Islandica.“
Handritið er skrifað af Árna Magnússyni og skrifara/skrifurum hans og tímasett til um 1700 í Katalog II , bls. 451.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. febrúar 1980.
Tekið eftir Katalog II , bls. 451 (nr. 2426). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1890. ÞS skráði 30. maí 2002.
Bundið í þrjú bindi af Birgitte Dall í september 1979. Bl. 318 (í stærra broti) er sér, fest í kápu. Band frá 1963 fylgir.
Viðgert og bundið í tvö bindi af Birgitte Dall í mars 1963.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.