Einungis uppköst. Nokkuð er um að skrifað sé á sendibréf.
Blöðin eru sködduð og samanbrotin á ýmsa vegu. Þau voru að hluta til skrifuð áður en strikað hefur verið yfir það.
Band frá maí 1964.
Handritið er tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog II , bls. 450.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. desember 1989.
Tekið eftir Katalog II , bls. 450 (nr. 2425). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1890. ÞS skráði 30. maí 2002.
Yfirfarið af Mette Jacobsen í október 1989.
Viðgert og fest í kápur og búið um í öskju í Kaupmannahöfn í maí 1964.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.