Hér í er m.a.: keisaratal, páfatal, spakmæli, siðferðilegir póstar, fyrirmæli, Hafursgrið, jólaskrá og óheilladagar, landfræðilegir póstar (m.a. úr Rómferlu) og útdráttur úr Hauksbók eða keimlíku riti.
Mjög slitið og illa farið. Skriftin er og máð.
Að hluta skrifað af Birni Jónssyni á Skarðsá.
Band frá seinni helmingi 20. aldar.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til loka 17. aldar í Katalog II 1892:449.
Árni Magnússon skrifar á kápu sem var utan um AM 208 IV 8vo og AM 208 V 8vo: Frá Hrafni, er var í Galmanstungu, 1708. Um vorið mér sent til eignar.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 10. desember 1993.
GI skráði 4. júlí 2012
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over den Arnamagnæanske håndskriftsamling , II. bindi, bls. 449.