Fest í tvöfalda bókfellskápu úr latnesku handriti. Á innri kápunni er fjallað um Leu og Rakel en á þeirri ytri er stór og falleg skrift frá um 1200.
Fastur seðill (150 mm x 99 mm) með hendi Árna Magnússonar: Mun ekki þessi bók vera frá síra Hjalta í Vatnsfirði.
Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 444.
Árni Magnússon telur sig hafa fengið handritið frá séra Hjalta Þorsteinssyni í Vatnsfirði (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 16. mars 1990.
Tekið eftir Katalog II , bls. 444-45 (nr. 2412). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 16. febrúar 1910. ÞS skráði 28. maí 2002.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í mars 1990. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.