Skráningarfærsla handrits

AM 180 8vo

Rím séra Gísla Bjarnasonar

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-34v)
Rím séra Gísla Bjarnasonar
Höfundur

Séra Gísli Bjarnason

Titill í handriti

Computus Menſium et | Dierum, Anni Sölaris. | Sölar Aarſsins, Mänada, og Daga | Reikningur … Samanntekinn og skri|adur. ä Aare | 1646

Athugasemd

Inniheldur inngang, tímatal, reglur um merkitungl og hreyfanlegar hátíðir ársins (ásamt töflum, skýringum og lausavísu), töflur fyrir sólaröld, tunglöld, flóð og fjöru sunnanvert á Íslandi (með tilheyrandi skýringum), latneskt kvæði um hina 12 mánuði ársins, vísa til afritara.

Höfundur tileinkar þetta eintak ritsins Halldóri Jónssyni að Hvaleyri á Álftanesi (bl. 34r).

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
34 blöð ().
Umbrot

Ástand

  • Blöðin eru mjög slitin.
  • Nafn höfundar á latnesku formi hefur verið útstrikað á bl. 34v.

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Skreytingar

Rautt blek notað sums staðar.

Band

Fylgigögn

Fjórir seðlar með hendi Árna Magnússonar.

Uppruni og ferill

Uppruni

Eiginhandarrit séra Gísla Bjarnasonar frá 1646.

AM 197 8vo var áður aftan við þetta handriti.

Ferill

Árni Magnússon fékk frá séra Gísla Jónssyni á Útskálum með tilstuðlan Styrs Þorvaldssonar (sjá seðla).

Jón Halldórsson hefur verið eigandi handritsins (sjá saurblað).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. júní 1980.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 434 (nr. 2392). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 11. febrúar 1910. ÞS skráði 13. maí 2002.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn