Skráningarfærsla handrits

AM 173 8vo

Rím ; Ísland, 1600-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1v-23v)
Rím séra Gísla Bjarnasonar
Höfundur

Séra Gísli Bjarnason

Athugasemd

Bl. 1r autt og 23v upprunalega autt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
23 blöð ().
Umbrot

Skrifarar og skrift

Ein hönd. Viðbætur með annarri hendi.

Skreytingar

Rauður litur til áherslu.

Nótur

Nótur á bókfelli í eldra bandi.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Eigandi handritisins, séra Hannes Björnsson, hefur skrifað giftingardag sinn og fæðingardaga barna sinna við daga, með meiru. Hann skrifaði einnig bl. 23v.

Band

Band frá september 1980.

Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til 17. aldar í  Katalog II , bls. 431.

Ferill

Séra Hannes Björnsson átti handritið.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. apríl 1981.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 431-32 (nr. 2385). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 19. mars 1890. ÞS skráði 7. maí 2002.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið á verkstæði Birgitte Dall í september 1980. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn