Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 164 8vo

Annar partur Eddu, eddukvæði og önnur kvæði ; Ísland, 1600-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-45r)
Annar partur Eddu
1.1 (1r-41v)
Um kenningar
Titill í handriti

Annar partur Eddu; um kenningar

Upphaf

Í hinum fyrra parti …

1.2 (41v-43r)
Epiologus síra Magnúsar Ólafssonar til síra Arngíms Jónssonar
Titill í handriti

Epiologus síra Magnúsar Ólafssonar til síra Arngíms Jónssonar

Upphaf

Þessar eru nú nokkurra hluta kenningar …

1.3 (43r-45r)
Til lesarans
Titill í handriti

Til lesarans

Upphaf

Ár ve[..] yður …

Skrifaraklausa

M.O.S orti.

Athugasemd

Undir skrifaraklausunni á blaði 45r stendur: Endi og í bókahnútnum þar fyrir neðan HTS.

2 (45v-49r)
Vafþrúðnismál
Titill í handriti

Vafþrúðnis jötuns mál

Upphaf

Ráð þú mér Frigg …

Efnisorð
3 (49r-56v)
Völuspá
Titill í handriti

Völuspá eftir Sæmundar-Eddu

Upphaf

Hljóðs bið eg allar helgar kindur…

Efnisorð
4 (57r-59v)
Alvíssmál
Titill í handriti

Alvíssmál

Upphaf

Bekki breiða nú skal brúðir …

Efnisorð
5 (59v-64v)
Skírnismál
Titill í handriti

Skírnisljóð

Upphaf

Freyr sonur Njarðar hafði sest í Hliðskjálf …

Athugasemd

Á undan kvæðinu er lausamálskafli sem hefst svo:

Upphaf kvæðis:

Efnisorð
6 (64v)
Tröllkonuvísa til Ólafs konungs Haraldssonar ellefu ára
Athugasemd

Óheil.

Efnisorð
7 (65r-67r)
Latnesk-íslenskar orðskýringar
Athugasemd

Tölur, nöfn yfir frændsemi (skyldleika), hátíðardagar kirkjuársins, tímatal.

8 (67v)
Draumavísur
Titill í handriti

Draumavísur

Athugasemd

Ein setning úr Gísla sögu Súrssonar.

Efnisorð
9 (68r-69v)
Vísur úr Íslendingasögum
Titill í handriti

Vísur úr Íslendingasögum

Athugasemd

Miðað við skráningu Kålunds Katalog II> , bls. 428 (nr. 2377) þá vantar blöð 70-83 (sjá nánar um Ástand.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 69 + i blöð ( 162 mm x 97-102 mm).
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking 1-69.

Kveraskipan

Níu kver.

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-48, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 49-56, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 57-64, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 65-69, 2 tvinn + 1 stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka (blöð 65-67 eru tví- og þrídálka.
  • Leturflötur er ca 130-135 null x 68-80 null
  • Línufjöldi er ca 16-18.
  • Griporð eru víða (sjá t.d. blöð 33 og 36r-37r).
  • Síðutitlar eru víðast hvar.

Ástand

  • Blöð eru víða blettótt og skítug og lítilsháttar bleksmitun hefur átt sér stað án þess þó að skemma textann (sjá t.d. blöð 37v-38r og 40v-41r).

Skrifarar og skrift

  • Að mestu með einni hendi, fljótaskrift.
  • Tveir skrifarar skrifa blöð 65r-69v.

Skreytingar

  • Skrautlegum upphafsstöfum bregður fyrir (sjá t.d. blöð 1 og 59v).

Fyrirsagnir eru með ýmsu móti (sjá t.d. á blöðum 41v og 46v).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Spássíugreinar eru víða (sjá t.d. 47v-48r).

Band

Band (170 mm x 130 mm x 23 mm) er frá 1977.

Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi er á kili og hornum. Saumað á móttök.

Bandið er í brúnni strigaklæddri öskju ásamt eldra pappabandi.

Fylgigögn

  • Seðill 1 á samanbrotinn (47 mm x 199 mm) seðillinn er stutt brot Hemings sögu: Sögn af Hemingi nokkrum norskum segist sr. Björn á Melum sig séð hafa í Skálholti in folio með hönd sr. Jóns í Villingaholti í tíð m[agister] Brynjólfs. Hennar innihald meðal annars var, að Hemingur hefi reynt listar við Harald kóng Sigurðarson. Og eitt sinn hefði kóngur beðið hann að hlaupa á skíðum fram af háum björgum og standa við í hlaupinu á bjargbrúninni, hvörju hann játti ef kóngur vildi þar standa sem það skildi staðnemast, það gjörði kóngur og hann Hemingur hljóp. Í þá tók hann í kápu kóngs, og vildi hafa það með sér ofan fyrir bjargið, en kóngur hafði látið kápuna lausa liggja svo hann fór með kóngi vif(?) hann festist á henni framan í bjarginu. En sem hann sá ei annað fyrir höndum en dauðann sofnaði hann og dreymdi Ólaf kóng helga segjandi: Ég vil hjálpa þér héðan ef þú lofar að drepa ei Harald kóng. Sá hann þá eina fost nær vaknaði(?)á hverri hann komst burt..
  • 2) Seðill (151 mm x 91 mm) Árna Magnússonar með upplýsingum um feril handritsins: Fengið hjá sr. Þórði Jónssyni. En hann hefði þetta kver fyrir fengið frá mér..
  • Textaleifar eru á blaðstubbi aftan við textablokkina, fyrir framan aftara saurblað.
  • Laus seðill með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar ( Katalog (II) 2374:424-425 ).

Það var áður fyllra eins og fram kemur á fremra saurblaði. Í handritinu voru alls 83 blöð en blöð 70-83 voru flutt í AM 167 8vo. Samkvæmt skráningu Kålunds í Katalog II , bls. 424-425 (nr. 2374) var efni blaðanna: kafli úr Heiðreks sögu (Slutningen af Gest den blindes gåder med efterfölgende kommentar af Björn Jónsson på Skarðsá og uddrag af sagaen), fuglagáta (Bóndi spurði húskarl sinn), Ráðning Brynhildar ljóða og Úr Hárbarðsljóðum.

Ferill

Til Árna Magnússonar var handritið komið frá sr. Þórði Jónssyni sem áður hafði fengið það frá Árna (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu ?.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 30. nóvember 2009; lagfærði í nóvember 2010

Kålund gekk frá handritinu til skráningar8. mars 1890 Katalog II> , bls. 424-425 (nr. 2374),

GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall 1977.

Myndir af handritinu

  • Negatív örfilma á Stofnun Árna Magnússonar í Reykjavík (1994; askja 420) (spjaldskrá)

Notaskrá

Titill: , Magnúsarkver. The writings of Magnús Ólafsson of Laufás
Ritstjóri / Útgefandi: Faulkes, Anthony
Umfang: 40
Höfundur: Bjarni Einarsson
Titill: Munnmælasögur 17. aldar, Íslenzk rit síðari alda
Umfang: 6
Titill: Hemings þáttr Áslákssonar,
Ritstjóri / Útgefandi: Fellows-Jensen, Gillian
Umfang: 3
Titill: Íslenzk fornkvæði. Islandske folkeviser,
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 10-17
Titill: Sitt af hverju,
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Þorkelsson
Umfang: 2
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Jorgensen, Peter A.
Titill: Gripla, Þjóstólfs saga hamramma. The case for forgery
Umfang: 3

Lýsigögn