„Hier Eptir koma ſkalld | ſkapar keningar og Rỏk til þeirra | Vt af Eddu og epterkỏmande | fräſỏgnum og kallaſt þeſse sij|dare partur Skallda“
Einungis Skáldskaparmál.
Fylgir Uppsala-Eddu að Háttatali, síðan er útdráttur úr þriðju málfræðiritgerðinni. Aftast í hdr. (bl. 54-55r) hefur fylgt útdráttur úr Bragaræðum, en er yfirstrikaður. Bl. 55v autt.
Griporð.
Ein hönd.
Mynd af stafahring á bl. 35r.
Nótur á bókfelli í eldra bandi (sjá myndir).
Band frá mars 1978. Strigi á kili og hornum, strigaklæðning, saumað á móttök.
Eldra band var úr bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.
Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar
Handritið er tímasett til um 1700 í Katalog II , bls. 424.
Árni Magnússon hefur fengið þennan seinni part Eddu sendan frá Guðrúnu Ögmundsdóttur í Flatey á Alþingi 1704. Árni segir hann samhljóða seinni parti þeirrar Eddu sem hann fékk frá Torfa Jónssyni 1703 (sjá seðil). Í bréfútdrætti frá Guðrúnu má sjá að hún hefur sent bestu "Skáldu" sem hún gat fundið. "Eddu" hafði hún sent árið áður.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. apríl 1988.
Tekið eftir Katalog II bls. 424 (nr. 2372). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 6. mars 1890. ÞS skráði 23. apríl 2002.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í mars 1978 (1977?). Eldra band fylgir ekki.