Skráningarfærsla handrits

AM 160 II 8vo

Snorra-Edda

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-19v, 1bis.)
Snorra-Edda
Höfundur

Snorri Sturluson

Athugasemd

Byrjar á Kienningar, þá kemur Stafa Hijngu og að lokum Httatal.

Bl. 1 er saurblað og bl. 9 upprunalega autt.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
19 + i blöð að meðtöldu 1 bis ().
Tölusetning blaða

Blaðmerkt 1-18, auk 1 bis.

Umbrot

Griporð.

Skreytingar

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Á bl. 1 eru eigendanöfn og lausavísa.
  • Á bl. 9 eru lausavísur, þrjár gátur og Tröllaslagur hinn forni.

Band

Bundið með AM 160 I 8vo. Band frá júní 1977. Strigi á kili og hornum, strigaklæðning.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til 17. aldar í  Katalog II , bls. 423.

Ferill

  • Árni Magnússon fékk handritið hjá Christian Worm 1709 (sjá seðil).
  • Jón Björnsson var eigandi handritsins (1v) og Erlendur Þórðarson skrifaði nafn sitt (1v).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. október 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 422-23 (nr. 2370). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1890. ÞS skráði 24. apríl 2002.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júní 1977. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Halldór Guðmundsson, norðlenzkur maður,
Umfang: s. 83-107
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Snorra-Edda

Lýsigögn