„Nokkrar rímur af Sigurði fornasyni“
Þrjár rímur. Bls. 46 upprunalega auð.
„Rímur af Þorsteini Bæjarmagn| S.I.O.S.“
Einungis upphaf 1. rímu, en eiga að vera 10 alls.
„Hie Byia Rijmu a Vilmunde | vid vtann “
24 rímur.
„Keiſaa Raune“
Einungis upphaf 1. rímu, en eiga að vera 18 alls.
„Wijkinga Rijmu fimm. Odta a Jone: G: S.“
Fimm rímur.
Handritið er blaðsíðumerkt 1-218.
Í handritið vantar víða, sums staðar hefur Jón Sigurðsson merkt hvar vantar á neðri spássíu.
Ein hönd.
Skreyttir upphafsstafir, oftast svartir.
Leifar af nótum á innri kápu.
Á bls. 46 hefur verið bætt við vísu með annarri hendi.
Band frá 1983.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
Fastur seðill (41 mm x 75 mm): „Kverið heyrir til Jóni Finnssyni.“
Með hendi Jóns Finnssonar og tímasett til fyrri hluta 17. aldar í Katalog II , bls. 410.
Jón Finnsson átti kverið 1633 (sjá innan á kápu fremst).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. maí 1984.
Tekið eftir Katalog II , bls. 410 (nr. 2354). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1890. ÞS skráði 8. apríl 2002.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn 1983. Eldra band fylgir.