Skráningarfærsla handrits

AM 63 8vo

Samtíningur

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r)
Annálsgreinar
Efnisorð
2 (5r-16r)
Vöruverðskrá Kristjáns fjórða fyrir Ísland 1619
Athugasemd

Í íslenskri þýðingu.

Efnisorð
3 (17r-19r)
Kaupstefnugrið
Athugasemd

Formálar fyrir kaupstefnugriðum á Akureyri.

Efnisorð
4 (20v-25r)
Vöruverð
Athugasemd

Í hundraðskaupi - í einkaupi.

Efnisorð
5 (25v-26v)
Draumur Ólafs Oddssonar
Titill í handriti

Draumur Ólafs Oddssonar

Athugasemd

Hvatning til umbóta, höfðingjar landsins hafa vistað sig allir í einni vist hjá þeim gamla Jóni lögmanni og hans bróður.

Efnisorð
6 (27v)
Skjöl
Athugasemd

Lögfesta um tvo hluta jarðarinnar Miklagarðs 1636.

7 (28r-40v)
Jónsbók
Athugasemd

Einungis efnisyfirlit nokkurra bálka Jónsbókar í stafrófsröð.

Vantar framan og aftan af. Byrjar í Þingfararbálki og endar í Kaupabálki.

Á bl. 33-34 eru fornbréf, innbundin: a) Útgefinn vitnisburður frá Hrafnagilsþingi 1652, b) dómsbréf í framfærslumáli (óheilt). Einnig er á bl. 35v lögfesta um jörðina Eyvindarstaði í Eyjarfjarðarsýslu.

Efnisorð
8 (43v-83v)
Samtíningur
Athugasemd

Útdráttur úr lögum, dómar, vitnaleiðslur, lögfestur, eignaafsal o.fl. M.a.:

Lijtid Jnne Hald edur Registr | stola og Klaustra Eigna, bl. 49.

Um ærumeiðingar, bl. 53.

[H]álfu meira, bl. 56.

Formálar fyrir þingsetningu og þingslitum (eftir Ólaf Jónsson fyrir hönd Björns Pálssonar sýslumanns), bl. 81v-82v.

Mörg blöð auð.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
83 blöð (). Bl. 34 er fastur seðill.
Umbrot

Ástand

Af bl. 47 er einungis strimill eftir, næst kili.

Skrifarar og skrift

Ýmsar hendur.

Skreytingar

Band

Band frá því í nóvember 1974.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (101 mm x 78 mm) með hendi Þórðar Þórðarsonar: Fengið þetta kver í Strandasýslu úr arfi eftir Magnús son Magnúsar Björnssonar er fyrrum var þar lögréttumaður og líka lögsagnari, þarf ei aftur skilast.
  • Efnisyfirlit Jóns Sigurðssonar fylgir.

Uppruni og ferill

Uppruni

Að mestu með hendi Ólafs Jónssonar í Miklagarði og skrifað í október 1626 (bl. 25v).

Ferill

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. október 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 368-69 (nr. 2264). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 11. nóvember 1889. ÞS skráði 23. janúar 2002 og bætti við skráningu 15. júlí 2020.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1974. Eldra band liggur með handritinu í öskju.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Opuscula, Halldór Guðmundsson, norðlenzkur maður
Umfang: IV
Lýsigögn
×

Lýsigögn