Rúnastafróf, rúnaformúlur um lækningar, trúarleg spakmæli. Upprunalega autt.
Formálar fyrir setningu og slitum héraðsþinga, stefnum og sáttaboðum.
Réttarbætur konunganna Hákonar Magnússonar 1305 og Eiríks Magnússonar 1294.
Frá 1490.
Frá 1564.
Aftökur o.fl.
Einungis hluti bókarinnar, þ.e. um sakeyris gjald.
Bókahnútar víða á neðri spássíu.
Nöfn finnast víða á neðri spássíu (t.d. bl. 16v-17r), einnig orðskviðir (bl. 18v) og nokkrar athugasemdir.
Handritið er tímasett til loka 16. aldar í Katalog II , bls. 360.
Árni Magnússon fékk að gjöf frá Halldóri Bjarnasyni í Litlu-Breiðuvík í Álftafirði (Reyðarfirði?) en hann hafði fengið hjá Hjalta Jónssyni, sem ættaður var ofan úr Fellum (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. desember 1975.
Tekið eftir Katalog II , bls. 360-61 (nr. 2252). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 1. nóvember 1889. ÞS skráði 16. janúar 2002.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.