Skráningarfærsla handrits

AM 39 8vo

Lög

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-119r)
Jónsbók
Efnisorð
2 (119r-126v)
Réttarbætur
Athugasemd

Réttarbætur konunganna Eiríks, Hákonar og Magnúsar.

Efnisorð
3 (126v-128v)
Lög og lagaformálar
Efnisorð
4 (129r-153r)
Kristinréttur Árna biskups
Titill í handriti

Hinn nýi kristinréttr Íslendinga

Athugasemd

Óheill. Vantar aftan af.

Fyrirsögn er neðst á bl. 128v.

Með endurbótum Odds Einarssonar biskups.

5 (153r-162v)
Reglugerðir
Athugasemd

Vantar aftan af.

Um bannfæringu úr statútum Jóns biskups í Skálholti 1345.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
162 blöð ().
Umbrot

Ástand

Blöð vantar í handritið.

Skreytingar

Upphafsstafir rauðir, bláir, grænir eða í ýmsum litum.

Rauðar fyrirsagnir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Bl. 58-59 og 62-63 innskotsblöð frá 17. öld.

Band

Fylgigögn

  • Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar.
  • Seðill 1 (a) (95 mm x 118 mm): Jónsbók. Réttarbætur. Formulæ Juridicæ nonnullæ. Kristinréttur nýi (Árna biskups) biskupa statutur nokkrar. Bókin er í 4to, ærið litlu, eður breiðu octavo.
  • Seðill 2 (124 mm x 93 mm): Þessa lögbók hefi ég fengið frá biskupinum magister Jóni Vídalín. Hann hafði hana fengið í umboði Gríms Magnússonar, og hafði hún verið eign Magnúsar (brita) Gíslasonar föður Gríms. Bókina hefur fyrrum átt Bárður Gíslason í Vatnsdal, að sögn lögmannsins Páls Jónssonar Vídalín, sem þetta hefur eftir Gísla Magnússyni, Jóni Jónssyni í Laugardalshólum og Magnúsi (brita) Gíslasyni sjálfum.
  • Efnisyfirlit Jóns Sigurðssonar.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett um 1470 (sjá  ONPRegistre , bls. 465), en til 15. aldar í  Katalog II , bls. 351.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Jóni Vídalín biskupi, sem hafði fengið það í umboði Gríms Magnússonar, en átt hafði Magnús Gíslason, faðir Gríms. Handritið átti áður Bárður Gíslason í Vatnsdal, að sögn Páls Vídalíns lögmanns, sem hefur þetta eftir Gísla Magnússyni, Jóni Jónssyni í Laugardalshólum og Magnúsi Gíslasyni sjálfum (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. október 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 351-352 (nr. 2236). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 22. desember 1909. ÞS skráði 7. janúar 2002.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Guðbjörg Kristjánsdóttir
Titill: Lýsingar í íslenskum handritum á 15. öld, Gripla
Umfang: 27
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Titill: , Jóns saga Hólabyskups ens helga
Ritstjóri / Útgefandi: Foote, Peter
Umfang: 14
Lýsigögn
×

Lýsigögn