Skráningarfærsla handrits

AM 960 XXI 4to

Sendibréf til Hins konunglega norræna fornfræðafélags ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-v)
Sendibréf til Hins konunglega norræna fornfræðafélags
Athugasemd

Bréfið er undirritað: Hvammi í Hjaltadal, þann 4ra Februarii 1847. Ólafur Ólafsson.

Bl. 2v autt.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
2 blöð (268 mm x 220 mm). Bl. 2 autt.
Skrifarar og skrift

Með hendi Ólafs Ólafssonar, snarhönd.

Band

Bundið í hefti í júlí 1984, pappaspjöld, kjölur klæddur fínofnum líndúki. Handritið liggur í öskju með AM 960 I-XXIII 4to.

Fylgigögn

Bréf til Jóns Sigurðssonar frá Carl Christian Rafn (ritara Fornfræðafélagsins).

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi 1847.

Ferill

Handritin AM 960 I-XXIII 4to komu í Árnasafn í Kaupmannahöfn frá Det kongelige nordiske Oldskriftselskab (Hinu konunglega norræna fornfræðafélagi) 1883.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 5. júní 1987.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði 31. mars 2020

Kålund gekk frá handritinu til skráningar 1892 (sjá Katalog II 1892:278 (nr. 2092).

Viðgerðarsaga
Viðgert í júlí 1984. Gamlar umbúðir fylgja.
Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Yelena Sesselja Helgadóttir
Titill: Góssið hans Árna, Alþýðleg fornfræði og Jón Sigurðsson forseti
Umfang: s. 81-95
Lýsigögn
×

Lýsigögn