„Sagan af Finnboga hinum ramma.“
„Ásbjörn hét maður. Hann var kallaður dettiás …“
„… þar til er þeir staðfestu ráð sitt og þóttu allir mikilhæfir menn.“
Og lýk ég þar Finnboga sögu.
Tuttugu og eitt kver.
Band (285 null x 245 null x 25 null) er frá 1987.
Spjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi er á kili og hornum. Kver eru saumuð á móttök.
Til 1987 voru hlutar f-g bundnir með AM 946 a-e 4to.Ný saurblöð; eitt hvoru megin.
Fyrir framan söguna er blað merkt g (hér skráð sem saurblað (i)); þar kemur auk þess fram blaðafjöldi og hvenær Kålund gekk frá handritinu til skráningar.
Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn fyrir Det Arnamagnæanske legat (Árnasjóð) og tímasett ca 1800-1883, en til 19. aldar í Katalog II , bls. 272.
Það er skrifað eftir AM 132 fol. (sbr. athugagrein á blaði 1r).
Handritið kom í Det Arnamagnæanske Institut frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 31. mars 1987.
VH skráði handritið 30. júní 2009; lagfærði í janúar 2011, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 28. ágúst 1909. Katalog II , bls. 272 (nr. 2078).
Viðgert og bundið af Mette Jacobsen í janúar 1987. Eldra band fylgir.