„Sagan af Þorgils Þórðarsyni orrabeinsfóstra eður Flóamanna saga“
„Haraldur kóngur gullskeggur réði fyrir Sogni …“
„… og lýkur hér svo sögunni af Þorgils Þórðarsyni orrabeinsfóstra. “
Það er kölluð Flóa[mann]a sag[a].
Blað 31 er skaddað að neðanverðu en textinn sleppur við skemmdir að öðru leyti en að það vantar neðan af nokkrum stöfum í lokasetningu sögunnar.
Fjögur kver.
Blað 31 er skaddað að neðanverðu.
Handritið er klætt í skinnkápu (218 null x 160-170 null x 5 null).
Jaðrar kápunnar eru ójafnir og kápan nær ekki að hylja að fullu blöðin í bandinu. Blár safnmarksmiði er á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til upphafs 19. aldar í Katalog II , bls. 269.
Handritið kom í Det Arnamagnæanske Institut frá Det Kongelige Nordiske Oldskrift-Selskab 1883.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. júlí 1985.
VH skráði handritið 9. júní 2009; lagfærði í janúar 2011. ÞS skráði 7. nóvember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 27. ágúst 1909. Katalog II; bls. 269 (nr. 2070).
Viðgert og bundið að nýju í gamla bandið í Kaupmannahöfn í desember 1983.