Manuscript Detail
AM 749 4to
View ImagesEdduefni; Skáldskaparmál, Háttatal og um rúnir; Iceland, 1611-1700
Contents
“Annar Partur Eddu um kenningar”
“… […] hafa í hinum fyrra […..] …”
“… stór fjöru sjóvar. ”
Hluti ritsins, Skáldskaparmál.
Í Katalog II 1889:175-176 (nr. 1865)segir að límt sé yfir blað 1r, sem líklega sé autt að mestu. Blöðin hafa verið aðskilin og gert hefur verið við blað 1 sem er töluvert skert, sér í lagi er neðri hluti við innri spássíu illa farinn.
“Enn aðrar deilur lengur reknar”
“ … Ár hinna (?) … ”
“… Nauð …”
Vantar líklega aftan af.
“… xvi samstöfur …”
Physical Description
- Blaðmerkt er með fjólubláum lit 2-28; blað 29 er merkt með blýanti (blað 1 er ómerkt).
Sjö kver.
- Kver I: blöð 1-8; 4 tvinn.
- Kver II: blöð 9-12; 2 tvinn.
- Kver III: blöð 13-16; 2 tvinn.
- Kver IV: blöð 17-20; 2 tvinn.
- Kver V: blöð 21-22; 1 tvinn.
- Kver VI: blöð 23-27; 2 tvinn + 1 stakt blað.
- Kver VII: blöð 28-29; 1 tvinn.
Nöfn, pennakrot o.fl. er á blaði 29.
- Nafnið “Bergur” er skrifað þrisvar á rektó-hlið blaðsins og “Ingveldur” tvisvar og hún var Jónsdóttir samkvæmt eftirfarandi kærleiksorðum: “Minni elskulegri, ástkærri Ingveldi M. Jónsdóttir.” Þar fyrir neðan er eitthvað illlæsilegt.
- Það sem skrifað er á versó-hlið blaðsins er illlæsilegt.
Band (210 mm x 190 mm x 15 mm) er frá 1964.
Strigi er á kili og hornum, pappírsklæðning. Ný saurblöð; eitt hvoru megin og kver eru saumuð á móttök.
- Einn seðill/umslag (205 mm x 155 mm) með hendi Árna Magnússonar. Á honum koma fram upplýsingar um aðföng “Snorra-Eddu sidare partur. mutilum et corrosam. Bekommet, for manga aar sidaen, af Assessor Thormod Toruesen. kom fra Island 1720. med anre mine sager.”.
- Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.
History
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett ca 1611-1700. Kålund tímasetti til 17. aldar (Katalog II 1889:175). Textinn er runninn frá AM 742 4to eða skyldu handriti, en er enn meira styttur (Faulkes 1979:107-108).
Árni Magnússon fékk handritið frá Þormóði Torfasyni og barst það frá Íslandi árið 1720 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 29. apríl 1977.
Additional
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í ágúst 1964.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, teknar fyrir viðgerð 1964 og fylgdu handritinu frá Kaupmannahöfn 1977. Eru í öskju með myndum af AM 747 4to.
Bibliography
Author | Title | Editor | Scope |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Faulkes 1979:107-108 | |||
Two versions of Snorra Edda. Edda Magnúsar Ólafssonar (Laufás Edda), Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi : Rit | ed. Anthony Faulkes | 1979; p. 509 p. |