Nótnaskrift á bókfelli í eldra bandi.
Band frá september 1979.
Var áður klætt bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótnaskrift.
Fastur seðill (131 mm x 104 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Þetta rímkver hefi ég til eignar fengið frá Þorsteini Ólafssyni á Oddsstöðum í Lundareykjardal. Auctor er síra Oddur Oddsson.“
Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 158.
Árni Magnússon fékk frá Þorsteini Ólafssyni á Oddsstöðum í Lundareykjardal (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. janúar 1980.
Tekið eftir Katalog II , bls. 158 (nr. 1834). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 4. október 2001.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í september 1979. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.