Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 720 a VI 4to

Heilagra manna drápa ; Ísland, 1400-1499

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-2v)
Heilagra manna drápa
Upphaf

… um dyrnar þustu …

Niðurlag

… mengið hjó sem skipaði þengill …

Athugasemd

Óheil.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
2 blöð (121-123 mm x 92 mm).
Tölusetning blaða

Blöðin eru ótölusett.

Kveraskipan

Tvinn (2 blöð).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 89 mm x 71 mm.
  • Línufjöldi er 24.
  • Stórir stafir í upphafi hvers erindis dregnir út úr leturfleti.

Ástand

  • Brot, vantar framan og aftan af handriti en einnig er texti skertur vegna skemmda á blöðum.
  • Merki um fúa sjást á handritinu.
  • Blettótt.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, léttiskrift.

Skreytingar

Bl. 2v: Laufskreyti á neðri spássíu.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Bl. 1r: VI, sem tákn um að handritið sé sjötti hluti í AM 720 a I-XI.
  • Bl. 1r og 2r: Áherslumerki.

Band

Band frá ágúst 1967 (244 mm x 248 mm x 2 mm). Pappakápa með línkili. Blöðin eru saumuð á móttak. Handritið liggur í öskju með öðrum handritum í AM 720 a I-XI 4to.

Fylgigögn

Í öskjunni liggur laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur það til 15. aldar ( Katalog II 1894:145 ).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1988.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í ágúst 1967.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn