„Lilia. | Eptir Membrana Ecke gamallre stafrett skrifud“
Bl. 7v og neðri helmingur 7r eru auð. Skrifuð eftir kálfskinnsbók sem kom frá Bólstaðarhlíð (sjá saurblað).
Ein hönd.
Fastur seðill (209 mm x 167 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Lilja skrifuð eftir kálfskinni er fannst í Bólstaðahlíð eftir Þorstein Benediktsson. Var þessi membrana atkvæðalítil eftir því sem mér skrifaði vísilögmaðurinn Páll Jónsson Vídalín, er þetta exemplar mér sent hefur. Á sama kálfsinni var Píslargrátur, af hverjum ég og hefi copiu með þessari sömu hendi.“
Með sömu hendi og AM 715 c 4to og tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog II , bls. 133.
Samkvæmt AM 477 fol. voru í AM 715 4to einnig annað eintak af Píslargráti með hendi Árna Magnússonar og Ljómur Jóns Arasonar með hendi Jóns Ólafssonar.
Páll Vídalín fékk eftir Þorstein Benediktsson í Bólstaðarhlíð og sendi Árna Magnússyni (sjá saurblað).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. maí 1983.
Tekið eftir Katalog II , bls. 133 (nr. 1779). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 25. september 2001.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.