Manuscript Detail
AM 679 4to
View ImagesOrdo ecclesiastici usus per anni circulum observandus; Iceland, 1200-1300
Contents
Ordo ecclesiastici usus per anni circulum observandus
Bl. 1r upprunalega autt.
Latin
Physical Description
Hugsanlegt er að eitthvað hafi glatast úr handritinu.
Á bl. 59v er pennateikning af sitjandi manneskju með jarðarkringluna í vinstri hendi og hægri hönd upplyfta (til að blessa).
Stór upphafsstafur í byrjun.
Upphafsstafir með rauðu og grænu bleki. Á spássíum eru tilvísunarmerki í sömu litum.
Fyrirsagnir með rauðu bleki.
Í handritinu eru eftirfarandi viðbætur:
- Þar sem megintexta lýkur á bl. 59r hefur neðsti þriðjungur síðunnar verið tekinn undir bréf (á íslensku) frá Jóni biskupi í Skálholti. Bréfið er ársett 1464 og með því er fyrirkomulag guðsþjónustu í Niðarósdómkirkju tekið upp í Skálholti.
- Á bl. 1r er grein á íslensku um fyrirkomulag guðsþjónustu og lýkur henni með upptalningu á fjórum Skálholtsbiskupum (Jóni Sigurðarsyni, Gyrði, Þórarni og Othgeiri Þorsteinssyni) og þremur prestum.
- Bl. 60 (185 mm x 110 mm) hefur verið aukið við handritið á 15. öld. Á 60r er áminningarbréf frá Skálholtsbiskupi er virðist varða erfðamál tveggja systkina þar sem nöfnin Solveig og Steinunn koma fyrir. Eitthvað hefur glatast af textanum þar sem rifnað hefur af skinninu af efri og ytri spássíu. Á 60v eru tveir formálar fyrir Skálholtsbiskup til nota við embættisverk sín.
- Pennaprufur og annað spássíukrot (með nokkrum mannanöfnum) er að finna á 1r, 9r, 17v, 25r, 37, 45v, 57v og 59v.
Þrír seðlar með hendi Árna Magnússonar.
- Seðill 1 (159 mm x 102 mm): “Orðubók. Komin til mín norðan úr landi og skal hafa fylgt einhverri kirkju í Vaðlaþingi.”
- Seðill 2 (167 mm x 107 mm): “Orðubók cum approbatione Johannes Episcopi Scalholtensis. Ég eignaðist bókina 1704.”
- Seðill 3 (125 mm x 100 mm): “Þetta hefi ég accurate confererat við annað Exemplar.”
History
Handritið er tímasett til 13. aldar í Katalog II, bls. 95. Í ONPRegistre, bls. 462, eru íslensku viðbótartextarnir tímasettir sem hér segir:
- 1r1-15 c1464,
- 59r26-48 1464,
- 60r-60v c1400-1500.
Árni Magnússon fékk bókina norðan úr landi árið 1704 og mun hún hafa tilheyrt kirkju í Vöðlaþingi (sjá seðla).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. maí 1992.
Additional
Tekið eftir Katalog II, bls. 95-96 (nr. 1692). Kålund gekk frá handritinu til skráningar ?. Haraldur Bernharðsson skráði í febrúar 2001.
Viðgert 1957.
Viðgert 1966.
Viðgert 1972.
Yfirfarið og hreinsað í apríl 1992.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Bibliography
Author | Title | Editor | Scope |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre | ed. Den arnamagnæanske kommision | ||
Merete Geert Andersen | “Colligere fragmenta, ne pereant”, | p. 1-35 | |
Stefan Andreas Drechsler | “Illuminated manuscript production in western Iceland in the thirteenth and early fourteeth centuries”, Gripla | 2017; 28: p. 169-196 | |
Christine Elizabeth Fell | Dunstanus saga, | 1963; 5 | |
Harry Fett | “Miniatyrer fra islandske haandskrifter”, Bergens Museums Aarbog | 1910; 7: p. 3-40 | |
Guðbjörg Kristjánsdóttir | “Lýsingar í íslenskum handritum”, Kirkja og kirkjuskrúð | 1997; p. 93-98 | |
Guðvarður Már Gunnlaugsson | “Handrit á latínu í íslenskum söfnum”, Díslex Dísæt lex(íkógraf)ía kennd Þórdísi Úlfarsdóttur fimmtugri 27.4.2011 | 2011; p. 32-35 | |
Halldór Hermannsson | Icelandic illuminated manuscripts of the middle ages, | 1935; 7 | |
Didrik Arup Seip | “Palæografi. B. Norge og Island”, Nordisk kultur | 1954; 28:B |