Blaðsíðumerking.
Skrift skafin burt að hluta á bls. 122 og e.t.v. á bls. 138.
Pennaflúraðir upphafsstafir.
Nafnið Sigríður Jónsdóttir skrifað með 17. aldar hendi á neðri spássíu bls. 129.
Band frá 1977.
Fastur seðill (119 mm x 144 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Landrés rímur (framhald) p. 10-19. Hjálmþers rímur p. 19-40. Friðþjófs rímur p. 40-50. Haralds Hringsbana rímur p. 50-60. Gríms og Hjálmars rímur p. 60-64. Hálfdanar Brönufóstra rímur p. 64-106. Bláus og Viktors rímur p. 107-122. Bærings rímur p. 123-233. Dínus rímur p. 133-138.“
Tímasett til c1550 (sbr. ONPRegistre , bls. 457), en til fyrri hluta 16. aldar í Katalog II , bls. 5. Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 604 a-b og d-h 4to.
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon senda til eignar á Alþingi 1707, frá Pétri Bjarnasyni á Staðarhóli. Jón Ólafsson úr Grunnavík lýsir bókinni sem óinnbundinni og þverhandarþykkri í handritaskrá sinni í AM 477 fol. Eftir það hefur henni verið skipt upp í átta pappahefti.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. maí 1978.
Tekið eftir Katalog II , bls. 7 (nr. 1529). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. DKÞ skráði handritið 28. ágúst 2003.
Bundið af Birgitte Dall í desember 1977. Eldra band fylgir.
Viðgert af Birgitte Dall í febrúar 1965.