„Sỏguþättur af | Drma Jooni“
Hálf fyrirsögnin með rúnaletri, sem Árni Magnússon hefur ráðið.
Eitt innskotsblað fremst með upplýsingum um feril handritsins.
Fastur seðill (199 mm x 157 mm): „Þetta Drauma-Jóns sögugrey fékk ég 1714 í januario af monsieur Bussens, en hann hafði þá nýlega fengið af einum góðum vin í Kaupenhafn, sem ekki vildi sitt heiti vita láta*. Sögugreyið var þá innbundið aftan við Njáls sögu og Ragnars sögu loðbrókar, en ég separeraði þetta hvert frá öðru. *Ég trúi að Bussens segði mér síðan, að þessi góði vinur hefði verið Andres stud.“
Handritið er tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 737. Það var áður innbundið með Njáls sögu og Ragnars sögu loðbrókar (sbr. Kålund).
Árni Magnússon skrifar á innskotsblað fremst að hann hafi fengið handritið árið 1714 hjá Busseus, sem fékk það hjá ónefndum manni, Andreas Stud að hyggju Árna.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. júní 1976.