Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 566 b 4to

Fóstbræðra saga ; Danmörk, 1687-1688

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-52v)
Fóstbræðra saga
Titill í handriti

Saga Þormóðar og Þorgeirs

Vensl

Eftirrit eftir AM 132 fol., þar sem sagan er óheil (vantar nærri hálfa aftan við, segir Árni Magnússon á seðli).

Niðurlag

… heldur stóðst allt …

Athugasemd

Vantar aftan af.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
55 blöð (213 mm x 166 mm). Auð blöð: 53-55. Blað 53 er tvöfalt en ekki hefur verið skorið upp úr því og þess vegna engar myndir teknar á milli bl. 53r og 53v, þær hliðar eru auðar og ekki taldar með í heildarblaðfjölda handritsins.
Tölusetning blaða

  • Upprunaleg blaðsíðumerking 48-102 (24v-51v).
  • Handritið var blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-52.

Kveraskipan

Sjö kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: bl. 41-48, 4 tvinn.
  • Kver VII: bl. 49-56, 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 155-162 mm x 110-115 mm.
  • Línufjöldi er 20-22.
  • Vísuorð eru sér um línu.
  • Eyður fyrir upphafsstafi víða.

Skrifarar og skrift
Tvær hendur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Lesbrigði með yngri hendi á spássíum.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (219 mm x 172 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Spjaldblöð úr prentaðri bók. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

Fastur seðill (87 mm x 165 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar, með athugasemd um innihald handritsins, forrit þess, og hvað vantar í söguna á rektóhlið. Versóhlið er auð.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn um 1687-1688, eftir Möðruvallabók, AM 132 fol. Kålund tímasetti til c1700 ( Katalog I 1889:720 ).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. júlí 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Filma á Landsbókasafni Íslands-Háskólabókasafni.

Notaskrá

Höfundur: Loth, Agnete
Titill: , Om nogle af Ásgeir Jónssons håndskrifter
Umfang: s. 207-212
Titill: , Membrana Regia Deperdita
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 5
Titill: , Fóstbræðra saga
Ritstjóri / Útgefandi: Björn K. Þórólfsson
Umfang: 49
Höfundur: Finnur Jónsson
Titill: Þormóðr Kolbrúnarskáld,
Umfang: 7
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Höfundur: Oresnik, Janes
Titill: An Old Icelandic dialect feature: iæ for æ, Gripla
Umfang: 5
Höfundur: Jónas Kristjánsson
Titill: , Um Fóstbræðrasögu
Umfang: 1
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Chesnutt, Michael
Titill: On the structure, format, and preservation of Möðruvallabók, Gripla
Umfang: 21
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Fagrlegr-farlegr-fallegr, Orð og tunga
Umfang: 6
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Athugasemdir við bók Más Jónssonar um Árna Magnússon, Gripla
Umfang: 11
Lýsigögn
×

Lýsigögn