„Saga af Hrafni Sveinbjarnarsyni Vestfirðingi sem Sturla hinn fróði lætur fylgja Íslendingasögunum miklu“
Handritið er skrifað eftir AM 557 4to.
„Sveinbjörn hét maður, son Bárðar svarta …“
„…bjó síðan í Vatnsfirði meðan hann lifði og lýkur hér sögunni.“
Blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-22.
Þrjú kver.
Að mestu með hendi Björns Jónssonar á Skarðsá, blendingsskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.
Nokkrar línur á bl. 3v, 12r og 13r með annarri hendi, blendingsskrift.
Band frá árunum 1772-1780 (198 mm x 169 mm x 7 mm). Saumað með hamptaumum í pappaspjöld. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Bókina hefur átt Oddur Sigurðsson lögmaður og hefur Árni Magnússon líklega fengið hana að láni og ekki skilað (E.G.P. 1998).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. október 1978.
Viðgert af Birgitte Dall 21. ágúst 1975.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.