„Söguþáttur af Þorvarði krákunef“
„Þorvarður hét maður og var kallaður Krákunef …“
„… Haraldur kóngur á Englandi tók ríki í Noregi 1046 við Magnús kóng enn góða.“
Á bl. 1r eru 17 línur sem krassað hefur verið yfir. Líklega niðurlag annarrar sögu.
Stakt blað og tvinn.
Bl. 1v-3r: Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Bl. 3r-v: Síðari efnisþátturinn sýnist vera með hendi séra Ólafs Gíslasonar á Hofi í Vopnafirði (sbr. Kålund), fljótaskrift.
Ígildi bókahnúts neðst á bl. 3v.
Pappaband frá árunum 1772-1780 (209 mm x 167 mm x 4 mm). Saumað með hamptaumi.
Safnmark og titlar eru skrifaðir framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Skuggi af prentletri á spjaldblöðum.
Árni Magnússon tók úr bók sem hann fékk hjá séra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. október 1978.
Viðgert af Birgitte Dall 14. ágúst 1975.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.