„Hér hefur Víga-Glúms sögu“
Uppskrift eftir Möðruvallabók, AM 132 fol.
„Ingjaldur hét maður, son Helga hins magra …“
„… allra vígra manna hér á landi“
og lýkur þar sögu Glúms.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki af Kålund.
Göt eftir bókaorm.
Bl. 1r-7v með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.
Bl. 8r-52r með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellíbrotaskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.
Spássíuleiðréttingar Árna Magnússonar.
Band frá árunum 1880-1920 (214 mm x 172 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi.
Eldra band var með bókfellsklæðningu úr Jónsbókarhandriti, með brotum úr Landsleigubálki.
Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett frá hausti 1686 til hausts 1688 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) og til um 1700 í Katalog I , bls. 669.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. janúar 1976.