„Saga af Hörð og hans fylgjurum þeim Hólmverjum“
„Á dögum Haralds hins hárfagra byggðist Ísland …“
„… hafa jafnmargir í hefnd verið drepnir sem Hörð.“
Lúkum vér svo sögu Hólmverja.
Blöðin hafa verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-51. Öftustu blöðin eru ótölusett.
Með hendi Jóns Torfasonar, fljótaskrift (sbr. AM 477 fol.).
Band frá árunum 1880-1920 (215 mm x 170 mm x 13 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Blár safnmarksmiði á kili.
Saurblöð tilheyra bandi.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600, en á því er brot úr hjúskapartilskipunum Friðriks II. (1587). Á bókfellinu eru eyður fyrir upphafsstafi.
Fastur seðill (191 mm x 159 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna á versóhlið. Rektóhlið er auð. Virðist hafa verið saurblað áður: „Þesse saga er skrifud epter hende Sr jons Erlendzsonar i Villingahollte, ur bok i folio sem tilheyrer hans Hój Excellence“
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 666.
Sagan er skrifuð eftir fólíóhandriti með hendi Jóns Erlendssonar í Villingaholti, þ.e. AM 160 fol. (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. september 1975.
Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920.