Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 478 4to

Grettis saga ; Ísland, 1635-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-85v)
Grettis saga
Titill í handriti

Grettis saga

Upphaf

Önundur hét maður …

Niðurlag

… hvör giftumaður Þorsteinn drómundur varð á sínum efstu dögum.

Baktitill

Ljúkum vér nú hér sögu Grettis Ásmundarsonar.

2 (85r)
Lausavísa
Upphaf

Sterkan nefndu báls börk …

Niðurlag

… veit enn lukkan af neitt.

Skrifaraklausa

Endir Grettis sögu.

Efnisorð
3 (85v)
Fortunatus saga
Titill í handriti

Hér byrjast saga af Fortunatus og sonum hans

Upphaf

Í einum höfuðstað …

Niðurlag

… þar var einn eðallegur…

Athugasemd

Hér er aðeins um tuttugu línur úr upphafi sögunnar að ræða. Blaðleifar þeirra þriggja blaða sem skorin hafa verið úr kverinu sýna leifar af skrifuðum texta.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 85 + i blöð (199 mm x 157 mm). Blað 85r er að miklum hluta autt.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerkt er með rauðu bleki 1-85.

Kveraskipan

Ellefu kver.

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-48, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 49-56, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 57-64, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 65-72, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 73-80, 4 tvinn.
  • Kver XI: blöð 81-85, 1 tvinn + 3 stök blöð.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 170-175 mm x 130-135 mm.
  • Línufjöldi er ca 24-28.
  • Griporð (sjá t.d. 7v-8r).
  • Leturflötur er afmarkaður við innri og ytri spássíu með línum dregnum með þurroddi.

Ástand

  • Á kveraskilum má sjá að kverin eru tekin að losna lítillega úr bandinu (sjá t.d. 8v-9r og 24v-25r).

Skrifarar og skrift

  • Skrifari er óþekktur, blendingsskrift.

Skreytingar

  • Fyrsta lína í kafla er yfirleitt með stærra og settara letri en texti meginmáls (sjá t.d. blað 1r (en þar á þetta einnig við um fyrirsögn sögunnar) og blað 9r).

Band

Band (199 null x 165 null x 21 null) er frá 1880-1920. Spjöld eru klædd mislitum pappír, skinn er á kili og hornum, spjöld eru pappírsklædd. Leifar af bláum safnmarksmiða eru á kili.

Fylgigögn

  • Seðill aftan á fremra saurblaði (120 mm x 123 mm) er með hendi Árna Magnússonar. Á honum eru upplýsingar um feril: þessa Grettirs sgu feck eg 17i4 i januario i Kaupenhafn af Monsr Bussens. enn hann hafde hana þä feinged af einum godum vin þar sem eckj villdi läta sitt heiti vita, enn Bussens sagde, ad þä hinn sama ecke fleira þess slags hafdi.
  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til ca 1635-1699, en til 17. aldar í  Katalog I , bls. 657.

Ferill

Árni Magnússon fékk söguna frá Busseus í Kaupmannahöfn í janúar 1714 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. apríl 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 16. apríl 2009; lagfærði í desember 2010 GI skráði 4. janúar 2002. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 13. júní 1887. Katalog I; , bls. 657-658 (nr. 1250).

Viðgerðarsaga

Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn