„…ga sínum. Það annað að eg“
„… föður Árna föður Ingileifar.“
Það vantar framan af sögunni í þessari uppskrift Árna Magnússonar en hún er gerð eftir broti sögunnar í AM 564a 4to (sbr. seðil). Niðurlag sögunnar hér og í brotinu gefur vísbendingu um sögugerð sem er öðruvísi en allar aðrar Þórðar sögur (sbr. seðil).
Tvö kver.
Með hendi Árna Magnússonar, blendingsskrift.
Band (210 mm x 164 mm x 5 mm) er frá 1772-1780. Spjöld eru klædd handunnum pappír. Blár safnmarksmiði er á kili.
Handritið er skrifað á Íslandi og er afrit af síðari hluta sögunnar í AM 564 a 4to.
Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 657.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. október 1975.
VH skráði handritið 14. apríl 2009; lagfærði í desember 2010. GI skráði 21. desember 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 11. júní 1887. Katalog I, bls. 657 (nr. 1247).
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.