Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 437-438 4to

Sturlunga saga, ; Ísland, 1660-1695

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-451v)
Sturlunga saga
Titill í handriti

Íslendinga saga.

1.1 (1r-21r (bls. 1-41))
Geirmundar þáttur heljarskinns
Titill í handriti

Íslendinga saga. 1. kapituli.

Upphaf

Geirmundur heljarskinn var son Hjörs kóngs Hálfssonar …

Niðurlag

… eða hittust þá stóðu þeir jafnan að málum hvor með öðrum svo lengi sem þeir lifðu.

1.2 (21r-51v (bls. 41-102))
Ættartölur
Titill í handriti

Nokkrar ættartölur eða mannanöfn Íslendinga sem fram koma í þessari sögu og byrjast hér annar þáttur af Einari Þorgilssyni. 1. kapituli.

Upphaf

Sæmundur hinn fróði átti Guðrúnu dóttur Kolbeins …

Niðurlag

… Orti Þorvaldur kvæði um bróður sinn, þóttist svo hyggja best af harmi eftir hann.

1.3 (52r-101v (bls. 103-202))
Prestssaga Guðmundar Arasonar
Titill í handriti

Þriðji þáttur Íslendinga. Fyrst um fæðing Guðmundar Arasonar er síðar varð biskup og hans uppfóstur og lærdóm. Hér er og getið Þorláks biskups er áður hefur kallaður verið hinn helgi. Sagan af Guðmundi dýra og hans gjörninga, hans mótstöðumannadeilur, manndráp, brenna og fleira sem um þann tíma hefur við borið. 1. kapituli

Upphaf

Nú tek ég þar til frásagnar er Guðmundur son Ara var fæddur …

Niðurlag

… Kolbeini Tumasyni líkuðu illa þessar málalyktir en Sighvati verr.

1.3.1 (102r-115v (bls. 203-230))
Haukdæla þáttur
Titill í handriti

Nokkrar ættartölur frá norskum og til Gissurar hvíta og frá honum hafa þeir fyrstu Skálholtsbiskupar sinn uppruna, svo og Þorvaldur Gissursson og hans synir: Gissur son hans sem síðar varð jarl, átti hann með sinni síðari konu, Þóru dóttur Guðmundar gríss og Sólveigar dóttur Jóns Loftssonar.

Upphaf

Ketilbjörn Ketilsson, maður norrænn, mjög frægur …

Niðurlag

… Sigurður gaf þau Tuma Sighvatssyni og komst Sighvatur að þeim svo síðan.

1.4 (116r-175v (bls. 231-350))
Íslendinga saga
Titill í handriti

Af Íslendingum og er fyrst af Guðmundi biskupi, Kolbeini Tumasyni og þeirra viðskiptum. Jafnframt þessu er sagan af Þorvaldi Vatnsfirðingi og Hrafni Sveinbjarnarsyni og þeirra deilum, item hvernig þeir helstu höfðingjar settu sig móti biskupi eftir fall Kolbeins.

Upphaf

Þá er Guðmundur biskup kom út og hann tók …

Niðurlag

… mælti þá Styrmir fyrir griðum og skildu við svo búið.

1.5 (178r-227bisr (bls. 351-453))
Íslendinga saga
Titill í handriti

Fimmti þáttur Íslendinga- eður Sturlunga sögu. Hvernig Þorvaldssynir veittu heimsókn og rændu á Sauðafelli, drápu og særðu þar marga menn og sátt þeirra við Sturlu; af Guðmundi biskupi og hans mótgangi og ofsóknum; Sturla lætur drepa Vatnsfirðinga; hans sigling og Rómganga; afturkoma; þræta Sigurðar og Kolbeins og afturkoma; af yfirgangi Órækju og afdrifum samt öðrum þrætum og manndrápum er á þeim árum hafa til fallið.

Upphaf

Hér byrja ég sögu af sonum Þorvalds í Vatnsfirði …

Niðurlag

… Á því sama ári er Þorvaldur andaðist, andaðist og Sigurður Ormsson, Flosi munkur Bjarnason og digur Helgi.

1.6 (227bisv-268v (bls. 453bis-537))
Íslendinga saga
Titill í handriti

Sjötti þáttur Íslendinga sögu. Af Sighvati á Grund og Sturlu syni hans og þeirra yfirgangi; af bardögum Sturlu og aðtektum, item hvernig Kolbeinn ungi, Gissur Þorvaldsson og fleiri aðrir safna liði; þeir feðgar í annan stað með því fleira sem fyrr og síðan gjörðist; um fall þeirra feðga og annarra á Örlygsstöðum: Kolbeinn gjörðist einvaldsherra fyrir norðan; sigling Snorra og útkoma, hans aftekt af Órækju, drápi Klængs og fleirum tilburðum hér á landi um þann tíma.

Upphaf

Gissur Þorvaldsson bjó að Reykjum …

Niðurlag

… að draga saman vináttu þeirra frænda. Var það og auðvelt.

1.7 (268v-301v (bls. 1-64))
Þorgils saga skarða
Titill í handriti

Sjöundi þáttur úr Sturlunga eður Íslendinga sögu. Um útkomu Þorgils skarða Guðmundssonar, Gissurar Þorvaldssonar og annarra Íslendinga; item skikkun Hákonar kóngs um eignir Snorra Sturlusonar og annað hér á landi; Hrafn Oddsson og Sturlu(!) Þórðarson gjöra Þorgilsi heimsókn í Stafholt; Hann lofar að vera þeim meðfylgjandi í aðförum við Gissur en brá því upp; Hrafn og Sturla snúa aftur við svo búið vegna óveðráttu. Gissur gjörist höfðingi í Skagafirði. Eftir það sættast þeir þrír Gissur, Hrafn og Sturla með öðru fleira. 1. kapituli.

Upphaf

Böðvar son Þórðar Sturlusonar bjó að Stað …

Niðurlag

… Hrafn var boðsmaður Gissurar.

1.8 (302r-373v (bls. 65-208))
Þorgils saga skarða
Titill í handriti

Þáttur úr Sturlunga eða Íslendinga sögu. Um útkomu Þórðar Sighvatssonar kakala; utanferð Gissurar Þorvaldssonar og Órækju Snorrasonar; um liðsdrátt Þórðar Sighvatssonar og hans fylgjara; af Kolbeini unga og viðskiptum, deilum óróa og orustum þeirra Þórðar, einkum skipabardagann á Flóanum. Kolbeinn ungi andast árinu seinna; Þórður sest á Grund, nær goðorðum og eignum eftir föður sinn. Brandur Kolbeinsson gjörist höfðingi yfir Skagafirði og Fljótum. Gissur kemur út aftur en Órækja andast í Noregi. Bardagi Þórðar á Haugsnesi og fall Brands Kolbeinssonar; Þórður og Gissur leggja öll sín mál á kóngsdóm og sigla út. Kóngur skipar Þórð yfir landið; hann kemur út, er hér nokkur ár; kóngur boðar hann utan. Sagan af Ormssonum, Rómganga Gissurar og annað fleira.

Upphaf

Einum vetri eftir lát Snorra Sturlusonar hófust þeir atburðir er mörg tíðindi gjörðust af síðan …

Niðurlag

… var þar nær viku og reið síðan heim norður á Flugumýri.

1.9 (374r-432v (bls. 209-334))
Íslendinga saga
Titill í handriti

Áttundi þáttur úr Sturlunga eða Íslendinga sögu. Af Eyjólfi Þorsteinssyni og hans liðssafnaði; um brullaupið og brennuna á Flugumýri, hvaðan Gissur komst undarlega; fær sér lið, drepur brennumenn hvar hann kann ná; setur Odd Þórarinsson yfir héraðið en siglir út; Eyjólfur safnar liði í annað sinn; fer að Oddi; Oddur fellur við drengilega vörn; nokkru seinna hefnir Þorvarður Odds bróður síns með styrk Þorgils og Sturlu svo Eyjólfur fellur. Hrafn og Ásgrímur flýja; biskup bannsyngur Þorgils og Þorvarð; Þorgils verður höfðingi yfir Skagafirði móti biskups vilja; Hrafn, Sturla og Þorgils sættast, item biskup og Þorgils; biskup siglir, andast í Noregi; þá enn um óvinskap og viðskipti Hrafns og Sturlu að nýju og þeirra sætt; item um dráp Þorgils.

Upphaf

Um sumarið áður en brullaupið var á Flugumýri um haustið …

Niðurlag

… stóð þetta mál þá kyrrt, dróst fundur undan og varð engi á því sumri.

1.10 (437r-452v (bls. 335-364))
Íslendinga saga
Titill í handriti

Þáttur af Íslendingum. Gissur Þorvaldsson kemur út með jarlsnafni, kaupir Stað á Reyni[s]nesi; gjörist höfðingi norðanlands; Sturli Þórðarson giftir tvær dætur sínar; Ásgrímur og jarlinn sættast; Ásgrímur fer til Róm; kemur út með Hallvarði gullskó; Íslendingar játa hlýðni og skatti Hákoni kóngi; Gissur jarl í háska; Þórður Andrésson aftekinn; ósamþykki Hrafns og Sturlu; Sturla hlýtur að sigla; skipaður síðar til lögmanns; andast í góðri elli.

Upphaf

Nú byrja ég þar frásögu er Gissur Þorvaldsson kemur út frá Noregi með jarlsnafni …

Niðurlag

… og jörðuðu það þar í kirkju Péturs postula, er hann hafði nær mesta elsku á haft af öllum helgum mönnum.

2 (453r-532v (bls. 365-526))
Árna saga biskups
Titill í handriti

Þáttur af Íslendingum. Sagan af Árna biskupi og hvernig bændur urðu þrengdir frá sínum óðulum með bannfæringum og ýmislegum tilfellum, hvað um þann tíma hefur tilborið hér á landi og Noregi; Hrafn Oddsson siglir og fleiri aðrir; hann andast í Noregi.

Upphaf

Herra Árni biskup er þessi frásögn er af skrifuð var son Þorláks Guðmundssonar …

Niðurlag

… þá datum 1309. Sigldi hann árið síðar eftir við til kirkjunnar og kom út á árinu næstu eftir með viðinn og margar gersemar aðrar. Hann dó anno Kristi 1320.

Athugasemd

80 kaflar.

Efnisorð
3 (533r (bls. 527))
Þrjár vísur gegn kaþólskum klerkum
Höfundur

Sr. Jón Arason í Vatnsfirði

Athugasemd

Vísurnar beinast einkum gegn Árna biskupi og Runólfi ábóta og ófriði í kaþólskri tíð.

Yfirskrift: Anno domini 1650 . Skrifað undir: Jón prestur Arason í Vatnsfirði.

Efnisorð
3.1 (533r (bls. 527))
Enginn titill
Upphaf

Árna biskum bráðum Birni …

Niðurlag

… lúki þeir honum þakkir minnkar.

Efnisorð
3.2 (533r (bls. 527))
Enginn titill
Upphaf

Runólfur var með Árna á einu …

Niðurlag

… biskupsvald var um þær aldir.

Efnisorð
3.3 (533r (bls. 527))
Enginn titill
Upphaf

Þökkum Guði og góðri lukku …

Niðurlag

… til eyðslum ráni og landeyðslu.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
I. bindi: i + 269 (þ.m.t. blað 227bis) + i blöð (203 mm x 160-163 mm). II. bindi: ii + 264 + i blöð (205 mm x 160-163 mm). Blað 533v er autt.
Tölusetning blaða

  • I. bindi blaðsíðumerkt 1-537 (þ.m.t. bls. 453 (bis)).
  • II. bindi blaðsíðumerkt 1-527.

Kveraskipan

AM 437 4to - þrjátíu og fimm kver.

  • Kver I: blöð 1-6, 3 tvinn.
  • Kver II: blöð 7-16, 5 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-22, 3 tvinn.
  • Kver IV: blöð 23-28, 3 tvinn.
  • Kver V: blöð 29-32, 2 tvinn.
  • Kver VI: blöð 33-38, 3 tvinn.
  • Kver VII: blöð 39-48, 5 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 49-54, 3 tvinn.
  • Kver IX: blöð 55-64, 5 tvinn.
  • Kver X: blöð 65-72, 4 tvinn.
  • Kver XI: blöð 73-82, 5 tvinn.
  • Kver XII: blöð 83-88, 3 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 89-96, 4 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 97-102, 3 tvinn.
  • Kver XV: blöð 103-109, 3 tvinn+ 1 stakt blað.
  • Kver XVI: blöð 110-117, 4 tvinn.
  • Kver XVII: blöð 118-125, 4 tvinn.
  • Kver XVIII: blöð 126-133, 4 tvinn.
  • Kver XIX: blöð 134-141, 4 tvinn.
  • Kver XX: blöð 142-149, 4 tvinn.
  • Kver XXI: blöð 150-157, 4 tvinn.
  • Kver XXII: blöð 158-166, 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver XXIII: blöð 167-174, 4 tvinn .
  • Kver XXIV: blöð 175-183, 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver XXV: blöð 184-191, 4 tvinn.
  • Kver XXVI: blöð 192-199, 4 tvinn.
  • Kver XXVII: blöð 200-207, 4 tvinn.
  • Kver XXVIII: blöð 208-215, 4 tvinn.
  • Kver XXIX: blöð 216-223, 4 tvinn.
  • Kver XXX: blöð 224-231, 4 tvinn.
  • Kver XXXI: blöð 232-239, 4 tvinn.
  • Kver XXXII: blöð 240-247, 4 tvinn.
  • Kver XXXIII: blöð 248-255, 4 tvinn.
  • Kver XXXIV: blöð 256-263, 4 tvinn.
  • Kver XXXV: blöð 264-269, 3 tvinn.

AM 438 4to - þrjátíu og þrjú kver.

  • Kver I: blöð 270-276, 3 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver II: blöð 277-285, 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver III: blöð 286-293, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 294-301, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 302-309, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 310-317, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 318-325, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 326-333, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 334-341, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 342-349, 4 tvinn.
  • Kver XI: blöð 350-357, 4 tvinn.
  • Kver XII: blöð 358-365, 4 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 366-373, 4 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 374-381, 4 tvinn.
  • Kver XV: blöð 382-389, 4 tvinn.
  • Kver XVI: blöð 390-397, 4 tvinn.
  • Kver XVII: blöð 398-405, 4 tvinn.
  • Kver XVIII: blöð 406-413, 4 tvinn.
  • Kver XIX: blöð 414-421, 4 tvinn.
  • Kver XX: blöð 422-429, 4 tvinn.
  • Kver XXI: blöð 430-437, 4 tvinn.
  • Kver XXII: blöð 438-445, 4 tvinn.
  • Kver XXIII: blöð 446-451, 2 tvinn + 2 stök blöð.
  • Kver XXIV: blöð 452-459, 4 tvinn.
  • Kver XXV: blöð 460-467, 4 tvinn.
  • Kver XXVI: blöð 468-475, 4 tvinn.
  • Kver XXVII: blöð476-483, 4 tvinn.
  • Kver XXVIII: blöð 484-491, 4 tvinn.
  • Kver XXIX: blöð 492-499, 4 tvinn.
  • Kver XXX: blöð 500-507, 4 tvinn.
  • Kver XXXI: blöð 508-515, 4 tvinn.
  • Kver XXXII: blöð 516-523, 4 tvinn.
  • Kver XXXIII: blöð 524-533, 5 tvinn.

Kver AM 437-438 4to eru því samtals sextíu og átta.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 156-163 mm x 110-115 mm.
  • Línufjöldi er ca 24-28 í uppskrift Einars Eyjólfssonar en á blöðum 1-73 í AM 437 4to þar sem óþekktur skrifari er að verki er línufjöldinn ca 30-36.
  • Síðutitlar ná víðast hvar yfir heila opnu (sbr. t.d. þá er Íslendinga á blaði 75v og saga á blaði 76r). Á blöðum1-73 í AM 437 4to í er titillinn í heild á hverju blaði.
  • Griporð eru víðast hvar en ekki þó alls staðar (sjá blöð 107v og 108r).
  • Sögurnar enda víða í totu (sjá t.d. 51v og 101v).

Ástand

  • Blekblettur á blaði 531v (skaðar texta).

Skrifarar og skrift

Blöð 1-73 í AM 437 4to, ritar óþekktur skrifari með kansellískrift.

Skreytingar

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Kaflatal, tilvísanir og leiðréttingar á spássíum (sjá t.d. 137v-138v)

Band

Band I; AM 437 4to: (213 null x 190 null x 75 null) er frá 1970.

  • Skinn er á kili og hornum, strigaklæðning. Saumað á móttök. Liggur sér í öskju.

Band II; AM 438 4to (213 null x 192 null x 68 null) er frá 1970.

  • Skinn er á kili og hornum, strigaklæðning. Saumað á móttök. Liggur sér í öskju.

Spjöld í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (tímasett til ca 1200 í  Katalog I , bls. 637).

  • Kjölur klæddur bókfelli úr sjókorti (sbr. ljósrit sem fylgir með í öskju hvors bands).

Fylgigögn

  • Laus seðill með upplýsingum um forvörslu handrits fylgir AM 437 4to
  • Tvö A4 blöð; ljósrit í tengslum við eldra band.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi , en virkt skriftartímabil skirfara var ca 1660-1695. Það er tímasett til 17. aldar í  Katalog I , bls. 637.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. apríl 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði handritið 25. mars 2009; lagfærði í nóvember 2010  DKÞ skráði 15. ágúst 2003. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 13. maí 1887 í Katalog I> , bls. 637 (nr. 1207).

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið í tvö bindi (eins og áður) í mars 1970. Eldra band fylgdi ekki.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Filma af bl. 452r-532v (Árna sögu biskups) á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi (askja 14).
  • Myndir (ljósrit?) af bókfellskili (sjókorti) úr eldra bandi á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, í kassa ásamt fleiri myndum frá Kaupmannahöfn af gömlu bandi.

Notaskrá

Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir, Þórður Jónsson í Hítardal
Titill: Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Kålund, Kristian
Titill: Om håndskrifterne af Sturlunga Saga og dennes enkelte bestanddele,
Umfang: 1901
Titill: , Árna saga biskups
Ritstjóri / Útgefandi: Þorleifur Hauksson
Umfang: II
Titill: Biskupa sögur
Umfang: I-II
Lýsigögn
×

Lýsigögn