Skráningarfærsla handrits

AM 408 h I-IV 4to

Biskupaannálar Halldórs Þorbergssonar ; Ísland, 1600-1700

Athugasemd
Samsett úr fjórum handritum.

Innihald

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír með vatnsmerkjum.
Blaðfjöldi
i + 40 + i blað.
Tölusetning blaða

Á síðari tímum hafa öll handritin verið blaðmerkt í einu (með blýanti) 1-39.

Band

Band frá 1880-1920 (226 mm x 175 mm x 12 mm). Kjölur og horn klædd svörtum, fínofnum líndúki. Pappaspjöld klædd svartleitum marmarapappír. Tvö saurblöð úr bandi. Handritið liggur í öskju með AM 408 a-i 4to.

Uppruni og ferill

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. febrúar 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • MJG uppfærði með gögnum frá BS, 19. febrúar 2024.
  • GI tölvuskráði 20. nóvember 2002.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 21. apríl 1887 ( Katalog (I) 1889:613).

Viðgerðarsaga

Otto Ehlert batt á árunum 1880-1920.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Hluti I ~ AM 408 h I

Tungumál textans
íslenska
1 (1r-3v)
Biskupaannálar Halldórs Þorbergssonar
Titill í handriti

Registur Skalhollts Biskupa

Upphaf

Anno 1056 vigdur Jsleijfur Biskup ...

Niðurlag

... deijdi biskup Øgmundur j Danmrk 1540 sumer hallda 1542

Athugasemd

Hluti af ritinu, um Skálholtsbiskupa.

Athugasemdir á 1r

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír með vatnsmerkjum.
    Vatnsmerki: Aðalmerki: Dárahöfuð með sjö bjöllum á kraga (bl. 2, 3 ).

    Á fylgiseðli er skjaldarmerki Amsterdam.

    Blaðfjöldi
    5 blöð (208 mm x 155-160 mm). Auð blöð 1v, 5r.
    Tölusetning blaða

    Seinni tíma blýantsblaðmerking 1-4.

    Kveraskipan

    Eitt kver (5 blöð, 2 tvinn og stakt blað).

    Umbrot

    • Eindálka.
    • Leturflötur er u.þ.b. 180 mm x 140 mm..
    • Línufjöldi er 29-30.
    • Griporð.

    Ástand
    • Blöðum 1 og 5 hefur verið skeytt saman, þannig að nú eru þau samhangandi tvinn. Blað 5 er gamalt umslag með utanáskrift (5r) til Benedikts Einarssonar í Skálholti.
    • Leifar af tveimur rauðum innsiglum.
    • Blettir en skerða ekki texta.
    • Bleksmitun.
    Skrifarar og skrift

    Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

    Skreytingar

    Fyrirsagnir er dregnar með aðeins stærri letri.

    Spássíugreinar og aðrar viðbætur
    Fylgigögn

    Á seðli (210 mm x 155 mm) sem er staðsettur fremst í handriti og festur við bl. 4v hefur Árni Magnússon skrifað: Author Halldör Þorbergsson.

    Uppruni og ferill

    Uppruni

    Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til 17. aldar (Katalog (I) 1889:613).

    Ferill

    Það er ekki vitað hvernig handritið kom til Árna Magnússonar, en á einhverjum tímapunkti var það sennilega hjá Benedikt Einarssyni sem lést 1707.

    Hluti II ~ AM 408 h II 4to

    Tungumál textans
    íslenska
    1 (1r-14r)
    Biskupaannálar Halldórs Þorbergssonar
    Titill í handriti

    Annälar nockrer | Edur Ärtal allra þeirra Biskupa, Sem verid hafa a Jslandi, Einkum | þeirra sem ad Stolum hafa setid, fra þui firsta ad Christinndomur hofst | a Jslandi. Eirninn af huorjum Jsland first er fundid og Bigt, og huorier | þa hafi a Nordurlondum rijkt, Bædi i Keysaradæmi. Paufalegu sæti | og odrum Kongarijkium hier i Evropa, þar med og lyka Nofnn annar|ra Biskupa og Ärtal þeira ey hafa stolsetid, og hier hafa Christni Bodad, | Samannskrifad eptir skyrum Annalum, og visri Historiu Olafs Kongs | Triguasonar (sem first kom Christni a Noreg Orkneyar FærEyar Jsland | og Grænland) Eirninn Authore Sira Arngrymi Jonssyni i Sinni Crÿ|mogæa

    Upphaf

    Anno Christi 770 fann Naddadur edur Nadoddur ...

    Niðurlag

    ... Christiann var med 13 synum þenorum 1551 i helsleiginn af nordlendskum vtrodrar mönnum

    Skrifaraklausa

    Anno 1678. HT (5r).

    Athugasemd

    Frásagnir af Skálholts- og Hólabiskupum eru settar hlið við hlið, þeir fyrrnefndu á versósíðum en þeir síðarnefndu á rektósíðum. Til samræmis við það hafa versósíður verið merktar með a, efst í vinstra hornið, en rektósíður með b, í hægra hornið.

    2 (14v)
    Virðingarbréf
    Athugasemd

    Bréfið er dagsett 1697. Undir eru nokkur nöfn, þar á meðal: Halldórs Þorbergssonar. Krossað hefur verið yfir textann með ljósari bleki.

    Tungumál textans
    íslenska

    Lýsing á handriti

    Blaðefni
    Pappír með vatnsmerkjum.
    • Vatnsmerki: Aðalmerki: Krúnað skjaldarmerki með liljum í miðju (bl. 5, 8, 13, 14 ).

      Ekkert mótmerki.

    Blaðfjöldi
    10 blöð (192-196 mm x 151-152 mm). Blað 13v er autt.
    Tölusetning blaða

    • Upprunaleg blaðmerking í bókstöfum a-h (5r-12r). Síðasta tvinnið er hins vegar ekki blaðmerkt, sem gæti bent til að það sé skrifað ögn seinna.
    • Seinni tíma blýantsblaðmerking 5-14.

    Kveraskipan

    Þrjú kver:

    • Kver I: bl. 5-8 (5+8, 6+7), 2 tvinn.
    • Kver II: bl. 9-12 (9+12, 10+11), 2 tvinn.
    • Kver III: bl. 13-14 (13+14), 1 tvinn.

    Umbrot

    • Eindálka.
    • Leturflötur er 160-176 mm x 122-124 mm.
    • Línufjöldi er 26-29.
    • Síðutitlar á 7v-13r.
    • Ártöl eru á spássíum.
    • Biskuparnir eru tölusettir á spássíum.

    Ástand

    Blettótt, mörg blöð dökk og óhrein.

    Skrifarar og skrift

    Ein hönd, Halldór Þorbergsson, fljótaskrift undir áhrifum blendingsskriftar.

    Skreytingar

    Fyrirsögn og síðutitlar eru skrifuð með kansellískrift.

    Spássíugreinar og aðrar viðbætur

    • Athugasemdir og leiðréttingar á spássíum virðast flestar með hendi skrifara. Á stöku stað er krot með annarri hendi.
    • Á 14v er virðingarbréf frá Glæsibæ í Skagafirði árið 1697, m.a. undirritað af Halldóri Þorbergssyni.
    • Á neðri spássíu á 5r hefur e-r skrifað nafn höfundar.
    • Á efri spássíu á 5r hefur e-r skrifað N 48., með rauðu bleki.
    • Á neðri spássíu á 5v er nafnið Gísli Ólafsson með annarri hendi.

    Uppruni og ferill

    Uppruni

    Skrifað Íslandi.

    Eiginhandarrit Halldórs Þorbergssonar árið 1678 (1r).

    Ferill

    Það er ekki vitað hvernig handritið kom til Árna Magnússonar.

    Hluti III ~ AM 408 h III

    Tungumál textans
    íslenska
    1 (15r-27v)
    Biskupaannálar Halldórs Þorbergssonar
    Titill í handriti

    Ärtal allra þeirra Byskupa sem ve|rid hafa ä Jslandi, Einkum þeirra | sem ad Stölum hafa setid, frä þuj | firsta ad Christendömur höfst ä | Jslande Eirnenn under Huorium | Köngumm þeir hafe | Lifad!

    Upphaf

    Frä þuj är 1000 ...

    Niðurlag

    ... Christiän var med 13 sÿnum þienurum 1551 j helsleig|enn af nordlendskum vtrödrar monumm

    Athugasemd

    Hluti af ritinu, hér vantar annálsgreinarnar til árins 1000.

    Lýsing á handriti

    Blaðefni
    Pappír með vatnsmerkjum.
    • Vatnsmerki: Aðalmerki: Hringlaga vatnsmerki með nokkrum mótífum innan í, þar á meðal tré. Á milli lína í hringnum er fangamarkið: "ALDSCH[...]" (bl. 15, 16, 21, 22, 23, 28 ).

      Ekkert mótmerki.

    Blaðfjöldi
    14 blöð (203-208 mm x 166 mm). Bl. 28 er autt.
    Tölusetning blaða

    Seinni tíma blýantsblaðmerking 15-28.

    Kveraskipan

    Tvö kver:

    • Kver I: bl. 15-22 (15+22, 16+21, 17+20, 18+19), 4 tvinn.
    • Kver II: bl. 23-28 (23+28, 24+27, 25+26), 3 tvinn.

    Umbrot

    • Leturflötur er 166-180 mm x 136-139 mm.
    • Línufjöldi er 22-25.
    • Síðustu orð á síðu hanga undir leturfleti á 20v.
    • Ártöl eru á spássíum.
    • Nöfn biskupanna og númer þeirra er á spássíum.
    • Griporð á 16r, 21r, 22v og 23r.

    Ástand
    • Blöð eru óskorin.
    • Pappír hefur dökknað og hefur nokkra bletti.
    • Bleksmitun.
    Skrifarar og skrift

    Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

    Skreytingar

    Á stöku stað eru upphafsstafir dregnir ögn stærra og örlítið skreyttir.

    Fyrirsagnir skrifaðar í kansellískrift.

    Spássíugreinar og aðrar viðbætur

    Viðbætur skrifara á spássíu á 16v.

    Uppruni og ferill

    Uppruni

    Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur það til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:613).

    Ferill

    Það er ekki vitað hvernig handritið kom til Árna Magnússonar.

    Hluti IV ~ AM 408 h IV 4to

    Tungumál textans
    íslenska
    1 (29r-39r)
    Biskupaannálar Halldórs Þorbergssonar
    Titill í handriti

    Annalar - Nockrer edur | Aartal allra þeirra Biskupa sem vered hafa ä Islande …

    Upphaf

    Anno 1000. Ad rde og samþicke Olafs kongs Triggva sonar ...

    Niðurlag

    ... hier hefur enda nafnaregistur og aartal þeirra | catholisku Hőla biskupa

    Athugasemd

    Hluti af ritinu, hér vantar annálsgreinarnar til árins 1000.

    Nokkurn veginn sami titill og í AM 408 h I.

    Bl. 11v autt.

    Lýsing á handriti

    Blaðefni
    Pappír með vatnsmerkjum.
    • Vatnsmerki: Aðalmerki: ProPatria (Maid of Dort) með fangamerki "AJ" fyrir neðan (bl. 29, 32, 34, 35, 37 ).

      Mótmerki: með fangamarki IV (bl. 30, 31, 33, 36, 38, 39 ).

    Blaðfjöldi
    11 blöð (211-215 mm x 162 mm). Bl. 39v er autt.
    Tölusetning blaða

    Seinni tíma blýantsblaðmerking 29-39.

    Kveraskipan

    Þrjú kver:

    • Kver I: bl. 29-32 (29+32, 30+31), 2 tvinn.
    • Kver II: bl. 33-36 (33+16, 34+35), tvinn og 2 stök blöð.
    • Kver III: 37-39 (37, 38+39), stakt blað og tvinn.

    Umbrot

    • Leturflötur er 174-178 mm x 132 mm.
    • Línufjöldi er 28-30.
    • Síðustu orð á síðu hanga undir leturfleti á 30r-v, 31v og 32r.
    • Griporð víða.

    Ástand
    • Blettótt.
    • Upplitað.
    Skrifarar og skrift

    Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

    Nöfn, staðir og lönd skrifuð með kansellísskrift.

    Skreytingar

    Á stöku stað eru upphafsstafir dregnir ögn stærra, 1-2 línur.

    Fyrirsagnir og fyrsta lína texta skrifuð með kansellísskrift.

    Litlar skreytingar til að fylla upp í línu.

    Spássíugreinar og aðrar viðbætur

    • Á fyrstu síðum handrits eru ártöl, nöfn og númer biskupanna á spássíum.
    • Viðbætur og athugasemdir með hendi skrifara.
    • Á efri spássíu á 29r er athugasemd um feril með hendi Árna Magnússonar: fra Jone Einarssyne 1697. .
    • Á spássíu á 1r er leiðrétting með hendi Árna Magnússonar.

    Fylgigögn

    Fastur seðill (174 mm x 147 mm) milli bl. 29 og 30 með hendi Árna Magnússonar, þar sem hann afritar athugasemd frá Jóni Einarssyni, m.a. um feril handritsins: Hver author þeirra biskupa annala er, sem vid hỏfum umskrifad. veit Sera Ari ecki

    sem mier þä liedi, nemi þad higg eg hann hafi þä feinged af Þorsteini Bendedicts syni

    Jon Einarsson 1698.

    Uppruni og ferill

    Uppruni

    Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur til 17. aldar ( Katalog (I) 1889:613).

    Ferill

    Árni Magnússon fékk handritið frá Jóni Einarssyni árið 1697 eða 1698 (sbr. seðil og 1r). Jón fékk það frá séra Ara Guðmundssyni, en hann fékk það frá Þorsteini Benediktssyni (sbr. seðil).

    Notaskrá

    Höfundur: Storm, Gustav
    Titill: Islandske annaler indtil 1578
    Titill: Íslenzk rit síðari alda, Móðars rímur og Móðars þáttur
    Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
    Umfang: 5
    Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
    Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
    Lýsigögn
    ×
    • Staður
    • Reykjavík
    • Stofnun
    • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
    • Vörsludeild
    • Stofnun Árna Magnússonar
    • Safn
    • Safn Árna Magnússonar
    • Safnmark
    • AM 408 h I-IV 4to
    • XML
    • Opna XML færslu  
    • Athugasemdir
    • Gera athugasemdir við handrit  

    Lýsigögn