„Nockrar Frasagner Þeirra Hlu|ta sem ädur a Fyrre tímum hafa skied I Tid þeirra biskupa sem fyrre voru …“
„Þad er her so sem i fleirum frasógnum ad her verdur margs ad giæta ...“
„... hann deyde 1193“
Hluti af ritinu, upphafið og að Páli Jónssyni biskupi.
Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam, með fangamarki "AJ" undir (bl. 1, 3, 4, 6 ).
Ekkert mótmerki.
Blaðmerking 1-4 (1r-4r) með rauðu bleki, með hendi Kålunds.
Eitt kver bl. 1-6 (1+6, 2+5, 3+4), 3 tvinn.
Ein hönd, Frans Ibsson, fljótaskrift, sjá: AM 456 fol., bl. 19r.
Upphafsstafir dregnir hærri (1-2 línur).
Fyrirsögn og fyrsta lína í kanselliskrift.
Sennilega band frá 1880-1887 (205 mm x 155 mm x 2 mm). Þunn pappakápa og er pappír límdur innan á kápuna. Handritið getur ekki verið bundið seinna en 1887, sbr. athugasemd Kålunds á fremra spjaldblaði. Handritið liggur í öskju með AM 408 a-i 4to.
Skrifað á Íslandi og af séra Frans Íbssyni (sbr. AM 477 fol.) og tímasett til upphafs 18. aldar( Katalog (I) 1889:612). Eftirrit eftir handriti sem Jón Erlendsson í Villingaholti skrifaði og Guðrún Þorgilsdóttir á Ingjaldshóli átti
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. febrúar 1974.
Otto Ehlert batt á árunum 1880-1887.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.