„Hier hefr ſaugu Guðmundar bi|ſcops Ara ſonar“
Hér er varðveitt A-gerð sögunnar.
Blaðsíðumerking með hendi Árna Magnússonar sýnir að hdr. hefur í fyrstu verið 149 skrifuð bl. og að þau hafa verið í annarri röð. Af þessum upphaflegu blöðum hefur þremur verið fargað (bls. 175-76, 209-10 og 265-66) en fjögur verið sett í þeirra stað (bl. 92, 120-121 og 138). Blöðum 6-9 hefur e.t.v. verið aukið við á árunum 1702-1712, þegar Árni var í Skálholti (Stefán Karlsson, 1983).
Ein hönd (bl. 6-9, 120-121 og 138 með tveimur höndum).
Pappaband frá árunum 1772-1780.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar og tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 605. Virkt skriftartímabil Ásgeirs var hins vegar c1686-1707.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1974.
Lánað á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn í febrúar 1979, en skilað aftur í júlí 1979.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.