„Hungurvaka“
„Bækling þennan kalla ég Hungurvöku …“
„… og þolinmæði bæði við óhlýðna menn og rangláta.“
„Hér hefur sögu af hinum heilaga Þorláki biskupi“
„Í þann tíma er stýrði Guðs kristni Innocentius páfi … “
„… lofandi Guð og hinn heilaga Þorlák biskup.“
Band (193 mm x 178 mm x 25 mm) frá 1979.
Pappaspjöld eru klædd fínofnum striga. Grófari dúkur á hornum og kili. Saumað á móttök.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli sem skrifað er á að innanverðu (þ.e. predikun á latínu).
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 594. Sögurnar voru áður í sömu bók og AM 404 4to, AM 446 4to og AM 458 4to.
Neðst á seðli segist Árni Magnússon hafa borið þetta handrit saman við skinnhandrit sem var í eigu Þorláks Skúlasonar biskups.
Árni Magnússon fékk sögurnar úr bók frá Jóni Einarssyni á Hólum en hún hafði verið í eigu Þorláks Skúlasonar biskups 1641. Guðbrandur Þorláksson gaf svo bókina Jóni Jónssyni. Hann fékk hana síðan séra Þorsteini Jónssyni á Eiðum árið 1662. Séra Þorsteinn gaf hana dóttur sinni Kristrúnu 1678 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 26. febrúar 1987.
VH skráði handritið 19. mars 2009; lagfærði í nóvember 2010, GI skráði 6. nóvember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. Katalog I> bls. 594 (nr. 1132).
Viðgert og bundið í maí til september 1979. Eldra band fylgir ekki.