„Hér byrjar Hungurvöku“
„Bækling þenna kalla ég Hungurvöku …“
„… og þolinmæði bæði við óhlýðna menn og rangláta.“
„Anno 1654, 28. aprilis.“
„Hér hefur sögu af hinum heilaga Þorláki biskupi.“
„Í þann tíma er stýrði Guðs kristni Anacletus páfi …“
Blaðsíðumerkt 1-154, af Jóni Sigurðssyni.
Með hendi Brynjólfs Jónssonar á Efstalandi, textaskrift.
Band frá því í júlí 1978(190 mm x 175 mm x 51 mm). Pappaspjöld eru klædd fínofnum striga, leður á hornum og kili. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi. Liggur í öskju með eldra bandi.
Band (188 mm x 146 mm x 35 mm) frá átjándu öld eða upphafi þeirrar nítjándu. Pappaspjöld klædd pergametni, leður á kili. Saurblöð fylgja bandinu.
Fimm seðlar (fremst og milli blaða 54v-55r og 65v-66r) með hendi Árna Magnússonar:
Árni Magnússon skrifaði upp nöfn fyrri eigenda af gamla titilblaðinu og þar kemur fram að handritið hefur verið í eigu Þorláks Skúlasonar biskups 1654, Guðbrands Þorlákssonar, Jóns Jónssonar á Hólum 1675, Péturs Bjarnasonar 1683, Guðbrands Björnssonar 1688 (hann lánaði Helga Ólafssyni) og Magnúsar Benediktssonar 1688 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 22. maí 1985.
Viðgert og bundið í júlí 1978. Fyrra band og hylki fylgir.