Skráningarfærsla handrits

AM 377 4to

Hungurvaka ; Ísland, 1690-1710

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1v-84v)
Hungurvaka
Titill í handriti

Hungur Vaka

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
i + 84 + i blöð ().
Umbrot

  • Upprunalega var aðeins skrifað í innri dálka versósíðanna en seinna var lesbrigðum bætt við á spássíur fyrir Árna Magnússon. Rektósíðurnar eru auðar.
  • Griporð.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Lesbrigði á spássíum.
  • Á bl. 1r er athugasemd með hendi Árna Magnússonar: Þeſſe Hungurvaka, er i fyrſtu ſkrifud epter Exemplare ſem eg hefi [ritudu 1654. ſem vered hefur hr. Þorlaks Skulaſonar], og ſidan confererud vid Exemplar med hendi Þorſteins Eyolfsſonar, fra Magnuſe Sigurdzſyne i Brædratungu [var i folio, og hafde eg þad til läns af Magnuſe 1703]. Er þad ſama Exemplar ur (!) ædi rangt. Þar er aptanvid Continuatio Sr. Jons Eigilssonar, og er hun eins raung ſem Hungurvakann ſialf [þeſſa Continuationem true eg ecki ad eg confereradi vid neitt af minum Exemplỏrum, og gillder þad eins, þvi hun var gaudraung, og ad audru lik þeim almennilegu.]

Band

Pappaband með pappírsklæðningu.  

Fylgigögn

Á rectosíðu 1. blaðs stendur með hendi Árna Magnússonar: Þessi Hungurvaka er í fyrstu skrifuð eftir exemplar sem ég hefi α, og síðan confereruð við exemplar með hendi Þorsteins Eyjólfssonar, frá Magnúsi Sigurðssyni í Bræðratungu β. Er það sama exemplar úr æði rangt. Þar er aftan við continuatio síra Jóns Egilssonar, og er hún eins röng sem Hungurvakann sjálf γ. α] rituðu 1654 sem verið hefur herra Þorláks Skúlasonar. β] Var í folio og hafði ég það til láns af Magnúsi 1703 γ] þessa continuationem trúi ég ekki að ég confereraði við eitt af mínum exemplarum, og gildi það eins, því hún var gauðröng, og að öðru lík þeim almennilegu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er tímasett til um 1700 í  Katalog I , bls. 593.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 593 (nr. 1129). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. GI skráði 2. nóvember 2001.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Byskupa sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Umfang: 13:1
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Hungurvaka

Lýsigögn