Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 349 I-II 4to

Sögubók ; Ísland, 1675-1699

Athugasemd
Samsett úr tveimur handritum.

Innihald

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 12 + i blöð.
Tölusetning blaða

Seinni tíma blýantsblaðmerking 1-12.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Fremra saurblað 2 er í reynd blað frá Árna Magnússyni, þar sem hann gerir m.a. nokkra grein fyrir innihaldi handrits og ferli. Samkvæmt AM 456 fol. ætti þetta að vera innihald AM 349 4to: af Ulfe Gyllde, Asgrime Syne hans og Þorsteine Tialldstæding og af Sneglu Halla ur Flateyarbök manu A Magnæi. | Þättr af Töka Tokasyne. | Þättr af Eymunde Könge Hringssyne. | Þättr af Eigle SiduHalls Syne, og Töfa Valgautssyne. | Þättr af Toka Tokasyne. Þättr af Sigurde Äkasyne af Eirike Vidforla. Þättr af Þorvallde Tasalda. Þättr af Sigurði og Hauki, Háreki í Þjóttu og Eyvindi Rimrisu.

Band

Band frá júlí 1978 (215 mm x 180 mm x 100 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Tvö saurblöð úr bandi og eitt gamalt.

Eldra band er pappaband frá 1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu. Fastur seðill (199 mm x 155 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar og skrifara hans: Þáttur af Þorvaldi tasalda. Þáttur af Sigurði og Hauki, Háreki í Þjóttu og Eyvindi Rimrifu [með annarri hendi]: úr bókinni sem ég fékk af síra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði.

Uppruni og ferill

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. nóvember 1978.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1978.

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í júlí 1977.

Hluti I ~ AM 349 I 4to

Tungumál textans
íslenska
1 (1r-5v)
Þorvalds þáttur tasalda
Titill í handriti

Þáttur af Þorvaldi tasalda, systursyni Víga-Glúms

Upphaf

Sigurður er maður nefndur …

Niðurlag

… Gjörði Þorvaldur Spak-Böðvarsson kirkju í Ási í Kelduhverfi. Hér nú ei meir að sinni.

2 (5v-5v)
Bárðar saga Snæfellsáss
Titill í handriti

Hér byrjast saga [af] Bárði Snæfellsás

Upphaf

Dumbur hefur kóngur heitið …

Niðurlag

… En Dofri tók …

Athugasemd

Brot, einungis upphafið (hálf síða).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
5 blöð (201 mm x 160 mm).
Tölusetning blaða

Seinni tíma blýantsblaðmerking 1-5.

Kveraskipan

Eitt kver (4 blöð, 2 tvinn og stakt blað).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 166-175 mm x 141-143 mm.
  • Línufjöldi er 30-33.

Ástand

Áður var límt yfir texta á 5v.

Skrifarar og skrift

Með hendi séra Ólafs Gíslasonar á Hofi í Vopnafirði, fljótaskrift.

Uppruni og ferill

Uppruni

Ferill

Árni Magnússon fékk söguna úr bók frá séra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði (fremra saurbl. 2r).

Aðrar upplýsingar

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í júlí 1977.

Hluti II ~ AM 349 II 4to

Tungumál textans
íslenska
1 (7r-9r)
Þorsteins þáttur tjaldstæðings
Titill í handriti

Ex Cod. Flateyen. col. 839.

Vensl

Uppskrift eftir Flateyjarbók (GKS 1005 fol.).

Upphaf

Úlfur hét maður er bjó á Þelamörk …

Niðurlag

… föður Gunnlaugs smiðs.

Athugasemd

Til hliðar við titil stendur: (vide Landnamab. pag. 158).

2 (10r-12v)
Sneglu-Halla þáttur
Titill í handriti

Saga Sneglu-Halla

Vensl

Uppskrift eftir Flateyjarbók (GKS 1005 fol.).

Upphaf

Það er upphaf þessarar frásagnar að Haraldur kóngur Sigurðarson …

Niðurlag

… Á grauti mundi greyið sprungið hafa.

Baktitill

Lýk eg þar sögu frá Sneglu-Halla.

Athugasemd

Vantar í texta.

Til hliðar við titil stendur: Ex Cod: Flat: col: 830.

Lýsing á handriti

Blaðfjöldi
7 blöð (204-210 mm x 157-160 mm). Blað 9v er autt.
Tölusetning blaða

Seinni tíma blýantsblaðmerking 6-12.

Kveraskipan

Sex laus blöð og eitt tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 165-172 mm x 125-135 mm.
  • Línufjöldi er 25-27.

Ástand

Strikað yfir texta neðst á 7v.

Skrifarar og skrift

Með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Lesbrigði á spássíum á 3v, 6v og 7v.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á Stangarlandi árið 1689 ( Már Jónsson 1998:85 ). Kålund tímasetur handritið til um 1700 ( Katalog I 1889:582 ).

Aðrar upplýsingar

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í júlí 1977.

Notaskrá

Höfundur: Loth, Agnete
Titill: Sønderdelte arnamagnæanske papirhåndskrifter,
Umfang: s. 113-142
Titill: , Membrana Regia Deperdita
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: V
Titill: Eiríks saga víðförla,
Ritstjóri / Útgefandi: Jensen, Helle
Umfang: 29
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Árni Magnússon : ævisaga
Lýsigögn
×

Lýsigögn