„Örvar-Odds saga“
Áður ranglega skráð sem KBAdd. 76 b 4to.
„Grímur hét maður og kallaður loðinkinni …“
„… og þar vaxið upp sá ættbogi sem frá henni hefir komið.“
Og lýkur hér nú sögu Örvar-Odds eftir því sem [eg] hefi hana á bókum heyrt. En þó að eg hafi mörg orð þau mælt eða framsagt í þessi sögu er ónytsamleg eru, því að eg veit eigi hvort nokkurt orð er satt eða ekki, þá bið eg þess að Guð almáttugur láti engan gjalda, þann er les eða hlýðir eða ritar. Nú sé Guð varðveitandi oss frá öllum illum hlutum meðan vér lifum hér í heimi en styrki oss til allra góðra hluta, en eftir þessa heims líf förum vér með honum sjálfum til eilífrar dýrðar þeirrar er hann hefir fyrir búið öllum sínum vinum um óendilegar aldir alda. Amen.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-24.
Þrjú kver.
Upphafsstafir í ýmsum litum, rauðum, bláum og grænum.
Rauður titill og kaflafyrirsagnir, en víðast máð.
Band frá 19. öld (228 mm x 168 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd pappír með ljósu marmaramynstri. Grátt skinn á kili og hornum. Saurblöð tilheyra bandi. Upprunaleg saumgöt eru við kjöl en hafa ekki öll verið notuð þegar handritið var bundið aftur.
Fastur seðill (164 mm x 104 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril: „Þessi Örvar-Odds saga var aftan við Alexandri Magni [Alexanders] sögu, með ágætri gamalli hendi ritara. Ég separeraði þetta. Bókina hefi ég fengið í Noregi.“
Árni Magnússon fékk handritið í Noregi (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. nóvember 1982.
Viðgert (minni háttar) af Birgitte Dall 1981. Teikning af heftingu liggur með handritinu.