Manuscript Detail
AM 344 a 4to
There are currently no images available for this manuscript.
Örvar-Odds saga; Iceland, 1350-1400
Contents
Örvar-Odds saga
“Örvar-Odds saga”
“Grímur hét maður og kallaður loðinkinni …”
“… og þar vaxið upp sá ættbogi sem frá henni hefir komið.”
“Og lýkur hér nú sögu Örvar-Odds eftir því sem [eg] hefi hana á bókum heyrt. En þó að eg hafi mörg orð þau mælt eða framsagt í þessi sögu er ónytsamleg eru, því að eg veit eigi hvort nokkurt orð er satt eða ekki, þá bið eg þess að Guð almáttugur láti engan gjalda, þann er les eða hlýðir eða ritar. Nú sé Guð varðveitandi oss frá öllum illum hlutum meðan vér lifum hér í heimi en styrki oss til allra góðra hluta, en eftir þessa heims líf förum vér með honum sjálfum til eilífrar dýrðar þeirrar er hann hefir fyrir búið öllum sínum vinum um óendilegar aldir alda. Amen.”
Áður ranglega skráð sem KBAdd. 76 b 4to.
Physical Description
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-24.
Þrjú kver.
- Kver I: bl. 1-7, 3 tvinn og stakt blað.
- Kver II: bl. 8-15, 4 tvinn.
- Kver III: bl. 16-24, 4 tvinn og stakt blað.
- Handritið er nokkuð skítugt og blettótt. Texti er örlítið skertur vegna þessa á bl. 16r. Á bl. 19v hefur blek runnið til í nokkrum orðum, líklega vegna vatnsskemmda. Á bl. 24v eru nokkur orð afmáð vegna slits.
- Nokkur orð hafa verið skafin burt á bl. 1r.
- Gat sem hefur orðið til við verkun á bl. 13, dálítill hárbrúskur hefur orðið eftir þar.
- Eindálka.
- Leturflötur er ca 170-178 mm x 117-135 mm.
- Línufjöldi er ca 31-36.
- Víða gatað fyrir línum.
Ýmsar hendur.
Óþekktir skrifarar, textaskrift (fremst) og árléttiskrift.
Upphafsstafir í ýmsum litum, rauðum, bláum og grænum.
Rauður titill og kaflafyrirsagnir, en víðast máð.
- Titill er með rauðu bleki lengst til hægri í fyrstu línu, en Árni Magnússon afritar hann efst fyrir miðju með svörtu bleki.
- Mjög víða eru leiðréttingar með yngri hendi á spássíum og er stundum strikað yfir orð í texta, sumt kann að vera lesbrigði.
- Á neðri spássíu á bl. 10r stendur: “eg Ívissi Ívarsson og Ingibjörg”. Einnig er spássíugrein á neðri spássíu bl. 23v og texti á neðri hluta bl. 24v sem reyndar er nokkurn veginn ólæsilegur.
Band frá 19. öld (228 mm x 168 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd pappír með ljósu marmaramynstri. Grátt skinn á kili og hornum. Saurblöð tilheyra bandi. Upprunaleg saumgöt eru við kjöl en hafa ekki öll verið notuð þegar handritið var bundið aftur.
Fastur seðill (164 mm x 104 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril: “þesse Óruaroddz saga. var aptan vid Alexandri Magni sógu, med agiætri gamalli hendi ritada, Eg separeradi þetta. Bokina hefi eg fengid i Norege.”
History
- Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1350-1400 (sjá ONPRegistre, bls. 452), en til um 1400 í Katalog I, bls. 579.
- Handritið var áður hluti af stærri bók með Alexanders sögu sem Árni Magnússon hlutaði sundur (sjá seðil). Um feril þessarar bókar sjá AM 519 a 4to.
Árni Magnússon fékk handritið í Noregi (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. nóvember 1982.
Additional
- ÞS skráði samkvæmt reglum TEIP5 9. desember 2009.
- GI færði inn grunnupplýsingar 8. ágúst 2001.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar 18. mars 1887 (Katalog I 1889:579-580 (nr. 1094).).
Viðgert (minni háttar) af Birgitte Dall 1981. Teikning af heftingu liggur með handritinu.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í febrúar 1981.
Bibliography
Author | Title | Editor | Scope |
---|---|---|---|
Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre | ed. Den arnamagnæanske kommision | ||
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||