Hér vantar frásögnina um hálfkirkjur sem er við lok AM 274 4to. Handritinu lýkur á að afrituð er eftirfarandi staðfesting úr einu af elstu afritum máldagabókarinnar, en þar segjast skólameistari og kirkjuprestur á Hólum hafa árið 1645 að ósk Þorláks Skúlasonar biskups: med kostgiæfne ſamanleſid þeſſa Mäldaga Bök Kirknanna i Hola Stifte vid ſiälfa Kälfſkins Skrædu Bokena Hvor ed liggur ä Biskups ſtolnum.
Blaðsíðumerking frá 1-229, en talan 65 tvítekin.
Á saurbl. skrifar Árni Magnússon: Skrifað eftir bók í stóru 4to sem liggur á Bessastöðum.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr íslensku handriti frá 16. öld með lúterskri kirkjutilskipun.
á fremra saurblaði stendur með hendi Árna Magnússonar: „skrifad epter bok i storu 4to sem liggur ä Bessastódum. “
Handritið er tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog I , bls. 527.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. október 1973.