Um eignir Hólastóls, klaustra og kirkna Norðanlands árin 1525-1571.
Skrá þessi var gerð þegar Jón Arason biskup tók við embætti. Hér er einnig rekaskrá Hólastaðar og vitnisburður Helga ábóta á Þingeyrum og fleiri manna 1526 um ráðsmannsreikning Péturs Pálssonar.
Skrá þessi var gerð við dauða Jóns Arasonar biskups. Aftan við er rekaskrá og húsmunaskrá klaustranna á Munkaþverá, Þingeyrum og Reynistað, sem og kirknamáldagar sennilega úr tíð Jóns Arasonar biskups. Bl. 54v autt.
Skrá þessi var gerð þegar séra Sigurður Jónsson tók við rekstri Hólastaðar sem officialis, þegar Ólafur Hjaltason biskup lést. Bl. 79v autt.
Skrá þessi var gerð þegar Guðbrandur Þorláksson biskup tók við embætti.
Ein hönd.
Nótur í bandi.
Spjöld og kjölur klædd bókfellsblaði í fólíó úr latneskri messubók með nótum.
Með hendi séra Snorra Jónssonar á Helgafelli og tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 524.
Snorri Jónsson skrifaði handritið á Hólum, en sendi það síðan Árna Magnússyni árið 1711 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1973.